Fimmtudagur, 9. september 2010
Landsdómur kallaður saman?
Allar líkur eru nú taldar á því að landsdómur verði kallaður saman. Nefnd alþingis,sem fjallað hefur um málið,skilar áliti á laugardag.Talið er að fjórir fyrrverandi ráðherrar verði kallaðir fyrir dóminn. Þó mun ágreiningur um það enn hvort kalla beri 2 eða 4 fyrrverandi ráðherra fyrir dóminn.
Björgvin Guðmundsson
Líkur á landsdómi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll hverjir fá að velja um það eru það þeir sem eiga að fara fyrir dóm sem ákveða hvort eða ekki? Ef svo er hvaða skrípaleikur er í gangi þarna á alþingi nú sem fyrr?
Sigurður Haraldsson, 9.9.2010 kl. 09:11
Sæll Sigurður!
Það er sérstök nefnd,sem alþingi kaus,sem gerir tillögu um það hverjir fari fyrir landsdóm.Tillagan verður lögð fyrir alþingi.Í nefndinni eiga þessir sæti: Atli Gíslason,formaður,Birgitta Jónsdóttir,Eygló Harðardóttir,Lilja Rafney Magnúsdóttir,Magnús Orri Schram,Oddný G.Harðardóttir,Ragnheiður Ríkharðsdóttir,Sigurður Ingi Jóhannsson og Unnur Brá Konráðsdóttir.
Með bestu kveðju
Björgvin Guðmundsson
Björgvin Guðmundsson, 9.9.2010 kl. 09:23
Þessu fólki treysti ég vel.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 9.9.2010 kl. 11:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.