Samningaleiðin svik á kosningaloforði um fyrningarleið

Hinn 1.oktober sl. birti ég grein í Fréttablaðinu um kvótakerfið.Þar sagði svo m.a.:

Ég tel niðurstöðu svokallaðrar sáttanefndar algjör svik á kosningaloforði Samfylkingarinnar og svik á ákvæði stjórnarsáttmálans um að fara fyrningarleiðina á 20 árum.Það er auðvitað fræðilegur möguleiki á því að ríkisstjórnin fari ekki eftir tillögum  " sáttanefndar". En með því að Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra er og hefur alltaf verið andvígur fyrningarleiðinni eru litlar líkur á að ríkisstjórnin ýti áliti nefndarinnar út af borðinu.Frá fyrsta degi hefur Jón Bjarnason dregið lappirnar í þessu máli.Hann hefur verið á móti fyrningarleiðinni og það var ljóst,að ætlun hans var sú,að nefndin mundi leggja fram einhverja moðsuðu eða  tillögur,sem fælu ekki í sér fulla framkvæmd á fyrningarleiðinni.Það hefur gerst. Að mínu mati var það út  í hött að skipa nefnd með fulltrúum frá LÍÚ til þess að fjalla um fyrningarleiðina.Vitað var að samtök útgerðarinnar voru á móti fyrningarleiðinni. Á meðan þau töldu,að halda ætti við ákvæði stjórnarsáttmálans neituðu fulltrúar þeirra að mæta í nefndinni. Þá fóru fyrirsvarsmenn nefndarinnar að hörfa í málinu og það dugði til þess að LÍÚ fór að mæta aftur. Útgerðarmenn höguðu sér í þessu máli eins og óþekkur krakki.
Guðbjartur Hannesson og aðrir fulltrúar stjórnarflokkanna í nefndinn hafa munað vel eftir útgerðarmönnum við nefndarstarfið og hafa reynt að þóknast þeim. En þeir gleymdu einum aðila. Þeir gleymdu kjósendum. KJósendum var lofað fyrningarleið á 20 árum. Það er nú verið að svíkja það. Hvar eru nú nýju vinnubrögðin,sem átti að taka upp eftir hrun. Átti ekki að hætta að svíkja kosningaloforðin? Átti ekki að virða vilja kjósenda og standa við gefin loforð. Jú því var heitið. Ef ríkisstjórnin svíkur fyrningarleiðina getur hún farið strax frá. Hún hefur þá fyrirgert rétti sínum til þess að sitja.
Björgvin Guðmundsson
 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband