Lífeyrir aldraðra hækki strax-endurskoðun TR verði frestað!

Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Morgunblaðið í dag. Þar segir svo:

Frá ársbyrjun 2009 til 2012 hafa lágmarkslaun hækkað um 33% en lífeyrir aldraðra einhleypinga hefur aðeins hækkað um 12,8% á þessu sama tímabili.(þeir,sem hafa aðeins tekjur frá TR ).Lífeyrisþegar hafa dregist aftur úr í kjaraþróuninni. Til þess að jafna metin þarf að hækka lífeyri aldraðra um 20%.Í lögum um almannatryggingar segir, að við ákvörðun lífeyris eigi að taka mið af þróun kaupgjalds en lífeyrir eigi þó aldrei að hækka minna en nemur hækkun vísitölu neysluverðs. Við þetta var ekki staðið á krepputímanum og því þarf nú að leiðrétta lífeyri aldraðra.

 

Lífeyrir hækki strax um 10%

 

Hvar á að fá peninga fyrir þessari leiðréttingu? Í lok sl. árs voru kjör ráðherra,þingmanna og æðstu embættismanna landsins leiðrétt. Ekki var þá spurt hvar ætti að fá peninga fyrir þeirri leiðréttingu.Það var einfaldlega ákveðið að hækka laun þessara æðstu embættismanna landsins en þau höfðu verið lækkuð tímabundið vegna kreppunnar eins og kjör aldraðra og öryrkja.Ég legg til, að endurskoðun almannatrygginga verði frestað en það látið hafa forgang í staðinn að leiðrétta lífeyri aldraðra.Hækka mætti lífeyri aldraðra í tvennu lagi: Um 10% strax og um 10% eftir 1 ár. Það kostar 5 milljarða að hækka lífeyri aldraðra um 10%.Það er miklu minna en það kostar að framkvæma tillögu starfshóps endurskoðunar almannatrygginga um breytingar á ellilífeyri og breyttum tekjutengingum.Þetta er aðeins spurning um forgangsröð.Síðan þarf að hækka lífeyri öryrkja einnig jafnmikið og lífeyri aldraðra.

 

Kjaraskerðingin tímabundin

 

Að sjálfsögðu þarf einnig að afturkalla kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá 1.júlí 2009. Það verður að standa undir þeirri leiðréttingu með skattahækkun og/eða niðurskurði ríkisúgjalda.Það verður ekki komist hjá þessari leiðréttingu.Það var tekið fram í athugasemdum með frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum 2009, að um tímabundnar ráðstafanir væri að ræða vegna ástandsins í efnahagsmálum en í því frumvarpi var kveðið á um kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja.Ráðherra nefndi 3 ár í því sambandi.Fjögur ár eru liðin frá bankahruni og 3 ár og 4 mánuðir frá lögfestingu kjaraskerðingarinnar.Velferðarstjórninni ber því skylda til þess að afturkalla kjaraskerðinguna nú þegar.

 

Engin kjarabót við endurskoðun TR

 

Það breytir engu þó endurskoðun almannatrygginga frestist í 1-2 ár. Þar er um að ræða sameiningu bótaflokka, sem bætir ekki kjör lífeyrisþega. Einnig er um að ræða nokkra breytingu á tekjutengingum svo sem minni skerðingu framfærsluuppbótar vegna annarra tekna.Á næsta ári vigta breyttar tekjutengingar mjög lítið eða aðeins nokkur þúsund krónur, þar sem mest er.Mun meira munar um afturköllun kjaraskerðingar frá 1.júlí 2009. Stór hópur lífeyrisþega á þá að fá grunnlífeyri á ný en hann nemur að fullu 32 þúsund krónum á mánuði.Og frítekjumark vegna atvinnutekna á að hækka úr 40 þúsund krónum á mánuði í 110 þúsund krónur á mánuði hið minnsta.

Ég skora á alþingi að leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja.Það má ekki dragast.

 

Björgvin Guðmundsson

www.gudmundsson.net


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Þökk sé þér, Björgvin Guðmundsson, fyrir einlæga baráttu þína vegna þeirra, sem minna mega sín í þjóðfélagi okkar.

Kær baráttukveðja, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 14.11.2012 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband