Ræður þingið eða flokksforingjar?

Fyrir  alþingiskosningar 2018 lýsti Sigurður Ingi formaður Framsóknarflokksins og nú samgönguráðherra því yfir,að hann væri andvígur veggjöldum.Þessi flokksformaður varð samgönguráðherra og þá bregður svo við,að Sigurður Ingi vendir sínu kvæði í kross og tekur afstöðu með veggjöldum. Hann tók sér stöðu með Jóni Gunnarssyni,íhaldsmanni,sem lengi hefur barist fyrir veggjöldum.Ljóst er,að veggjöld munu einkum lenda þunglega á íbúum höfuðborgarsvæðisins og SV hornsins.Bíleigendur eru búnir að borga vegaframkvæmdir með miklum bensínsköttum og bílasköttum  áður en þeir peningar hafa ekki verið notaðir nema að litlu leyti í vegina.Það  er því ósiðlegt að ætla að láta bíleigendur borga þetta aftur.- En það sem er þó enn verra eru vinnubrögðin við að koma veggjöldum á. 

 Það eru flokksforingjar stjórnarflokkanna,sem ákveða þetta en ekki þingið.Það er búið að tala um það í margar vikur að lagðir verði á vegtollar.Foringjarnir ákváðu þetta og þá þurfti ekki að spyrja þingið.Foringjaræðið er algert. Lýðræðið er fótum troðið.Þinginu er gefið langt nef.Þingræði er ekkert.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband