Mánudagur, 21. janúar 2008
Grandi dregur saman seglin á Akranesi
HB Grandi ætlar að leggja af landvinnslu botnfisks í núverandi mynd á Akranesi og hefja þar þess í stað sérvinnslu á léttsöltuðum, lausfrystum þorsk- og ufsaflökum í byrjun júní. Öllum starfsmönnum HB Granda í landvinnslunni á Akranesi verður sagt upp störfum 1. febrúar og síðan verða endurráðnir 20 starfsmenn í flakavinnslu og til vinnslu loðnuhrogna. Nú starfa þar 59 starfsmenn.
Haraldur Böðvarsson og Co var gífurlega öflugt útgerðar-- og fiskvinnslufyrirtæki á Akranesi og til fyrirmyndar í alla staði. Grandi gleypti fyrirtækið með loforðum um mikinn rekstur áfram á Akranesi en það hefur nú verið svikið.Það verða aðeins 20 starfsmenn áfram hjá fyrirtækinu á Akranesi. Það er allt sem eftir er af Haraldi Böðvarssyi og Co eftir að Grandi er búinn að fara höndum um það og gleypt það. Það er alls staðar sama sagan: Stóru fyrirtækin efna til samstarfs og sameiningar við minni fyrirtæki með fallegum orðum um að rekstur í heimabyggð verði óbreyttur en síðan er það allt svikið. Tilgangurinn er sá einn að ná kvótanum.
Björgvin Guðmundsson
Grandi hættir landvinnslu botnfisks í núverandi mynd á Akranesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:27 | Facebook
Athugasemdir
Mun sá fiskur verða keyptur á fiskmarkaði, þar sem öllum er frjálst að versla
Jóhanna Guðný Baldvinsdóttir, 21.1.2008 kl. 15:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.