Frítekjumark fyrir lifeyrissjóðstekjur: Stendur á Sjálfstæðisflokknum?

Það undrar mig mjög,að ekki skyldi gert ráð fyrir   frítekjumarki fyrir
lífeyrissjóðstekjur  í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar 5.desember sl.
Eitt mikilvægasta  hagsmunamál eldri  borgara í dag er að afnema  skerðingu á tryggingabótum vegna lífeyrissjóðstekna.Samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5.desember sl. ætlar ríkisstjórnin að beita sér fyrir því,að  atvinnutekjur,allt að 100 þúsund krónur á mánuði, skerði ekki tryggingabætur.( 100 þúsund króna frítekjumark).Stefnt er að því,að sú breyting taki gildi 1.júlí n.k.  og að hún gildi fyir þá sem eru 67-70 ára.En það er jafnvel enn mikilvægara að afnema skerðingu tryggingabóta vegna lífeyrissjóðstekna eða a.m.k. að stíga fyrsta skrefið  á þeirri braut.( 100 þús. kr. frítekjumark) -Það er mikið stærri hluti eldri borgara,sem er  í lífeyrissjóði en sá hluti  þeirra sem er  atvinnumarkaði.Það eru 20-30% ellilífeyrisþega á vinnumarkaði en yfir 90 % eru
i lífeyrissjóði. Hvers vegna kom ekki tillaga um þessa breytingu? Samfylkingin vill gera hana. Stendur á Sjálfstæðisflokknum?
Björgvin Guðmundsson
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband