Eru fjármagnstekjur mikilvægari en lífeyrissjóðstekjur?

Það mun hafa verið ákveðið að  setja 90 þús. kr. frítekjumark  fyrir fjármagnstekjur.Er það m.a. rökstutt með því,að þá muni draga úr ofgreiðslum Tryggingastofnunar,þar eð oft séu það fjármagnstekjur sem gleymist eða séu vanáætlaðar hjá  öldruðum.Það kann að vera góð og gild röksemd. En skýtur það ekki nokkuð skökku við,að tryggingabætur séu fremur skertar vegna lífeyrissjóðstekna en vegna fjármagnstekna.Hvort tveggja er sparnaður í flestum tilvikum. Lífeyrissjóður er ævilangur sparnaður. Fólk hefur  greitt í lífeyrissjóð alla ævi til þess að eiga eitthvað til efri ára að vinnudegi loknum.Fjármagnstekjur eru yfirleitt einnig tilkomnar vegna sparnaðar en þá er þar um viðbótarsparnað að ræða. Þeim sparnaði er gert hærra undir höfði en lífeyrissjóðs sparnaði. Það sama á raunar við um viðbótarlífeyrirssparnað. Frá og með næstu áramótum á að vera unnt að leysa hann út án þess að hann valdi skerðingu tryggingabóta. Viðbótarlífeyrissparnaður  verður þá einnig tekinn fram yfir lífeyrissjóðssparnað. Stenst þetta? Er unnt að verðlauna viðbótarlífeyrissparnað og  fjármagnstekjur en refsa mönnum fyrir að  greiða í lífeyrissjóð. Ég held ekki. Það verður að  afnema skerðingu tryggingabóta vegna lífeyrissjóðstekna.

 

jörgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband