Reynt að tefja eftirlaunafrumvarp Valgerðar

Eftirlaunafrumvarp þingmanna var ásamt öðrum þingmannafrumvörpum til umræðu allsherjanefndar Alþingis í morgun, að sögn Birgis Ármannssonar, formanns nefndarinnar. Valgerður Bjarnadóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, lagði frumvarpið fram fyrr á þessu þingi.

Birgir segir að málið verði til skoðunar hjá nefndinni á næstunni. Í stjórnarsáttmála er gert ráð fyrir að eftirlaunalögin verði tekin til skoðunar og segir Birgir að eitt af þeim atriðum sem allsherjanefnd þurfi að skoða sé hvaða vinna hafi farið fram í málinu af hálfu forsætisráðuneytisins.

Haft var eftir Grétu Ingþórsdóttur, aðstoðarmanni forsætisráðherra, í fréttum RÚV í síðustu viku að unnið væri að stjórnarfrumvarpi í forsætisráðuneytinu um breytingu á lögum um eftirlaun þingmanna og ráðherra. Þá kom fram að stjórnarfrumvarpið yrði líklega ekki lagt fyrir á þessu þingi.

Fyrir  þrautseigju Valgerðar Bjarnadóttur ræddi allherjarnefnd loks umrætt frumvarp.En ljóst er af orðum formanns nefndarinnar,Birgis Ármannssonar,að hann vill drepa málinu á dreif og tefja framgang þess. Það er  óásættanlegt.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband