Ríkið græðir á gengislækkuninni

Tekjur ríkissjóðs af virðisaukaskatti munu aukast umtalsvert vegna gengislækkunar krónunnar. Ástæðan er sú að við lækkun gengis hækkar innkaupsverð og virðisaukaskatturinn er prósentutala sem tekur mið af innkaupsverði. Það kann þó að vera að verðhækkunin dragi að einhverju leyti úr sölu, en það hefur áhrif á tekjur ríkissjóðs.

Ein af þeim vörum sem hækka þessa dagana er áfengi, en gengislækkun krónunnar hefur mikil áhrif á verð til neytenda.

Stéphane Aubergy, víninnflytjandi hjá Vínekrunni, segir að það hljóti að vera umhugsunarvert fyrir neytendur sem þurfi að taka á sig verðhækkun á áfengi að ríkið skuli hagnast mest. ÁTVR, sem sé með fasta álagningarprósentu, hagnist einnig. Hann segir að miklar verðhækkanir á áfengi séu framundan. Fyrir utan gengisbreytingar sé innkaupsverð að hækka og flutningskostnaður

Ríkið vælir alltaf yfir peningaleysi. en sannleikurinn er sá,að  afkoma ríkissjóðs er mjög góð og hún batnar við gengislækkunina. Fjárlög voru afgreidd með miklum tekjuafgangi og auk þess á ríkið miklar fúlgur fjár í Seðlabankanum frá því Síminn var seldur. Það eru því nógir peningar til hjá ríkinu.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Ríkið hagnast á gengislækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband