Sunnudagur, 30. mars 2008
30.mars,afmæli óeirða við Alþingishúsið
Í dag eru 59 ár frá því óeirðirnar miklu urðu við Austurvöll í tengslum við inngöngu Íslands í NATO.Ég var þá í Gagnfræðaskólanum við Lindargötu og gekk úr skólanum heim og um Austurvöll. ER ég kom á Austurvöll var óeirðum að ljúka og útlitið eins og eftir loftárás.Fjöldi fólks var á Austurvelli að mótmæla inngöngu Íslands í NATO en einnig var þar mikill fjöldi sem studdi inngönguna enda höfðu Sjálfstæðisflokkur,Framsókn og Alþýðuflokkur beðið stuðningsmenn NATO að koma á Austurvöll.Lögregla varð að skakka leikinn og þetta voru sennilega mestu óeirðir a.m.k. frá Gúttóslagnum.
BJörgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.