Sunnudagur, 20. apríl 2008
Mjótt á munum milli Clintons og Obama
Hillary Clinton og Barack Obama, sem berjast um að verða forsetaefni bandaríska Demókrataflokksins, hafa ráðist harkalega hvort að öðru í kosningaræðum sínum um helgina. Prófkjör flokksins fer fram í Pennsylvaniu á þriðjudag og er talið er að úrslit þess geti ráðið úrslitum um það hvort þeirra verður í framboði í haust. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Obama sagði m.a að Clinton tryði á það að segja og gera hvað sem væri til að koma hagsmunamálum í gegn í Washington. Að þannig telji hún að hlutirnir eigi og verði að vera. Þið eigið því að kjósa hana af því að hún hefur verið lengur í Washington og kann því leikinn betur," sagði hann.
Clinton sagði hins vegar að Obama hafi gripið til niðurrifsaðgerða eftir að þau mættust í kappræðum í síðustu viku. Það er ekki furða hvað andstæðingur minn hefur verið neikvæður undanfarna daga enda held ég að þið hafið þá séð þann mikla mun sem er á okkur," sagði hún og vísaði þar til kappræðnanna. Þetta snýst um val á leiðtoga og ég býð ykkur leiðtoga sem þið getið treyst," sagði hún.
Fréttaskýrendur eru flestir sammála um að Clinton verði að sigra í prófkjörinu á þriðjudag til að geta haldið baráttu sinni áfram en þrátt fyrir sigur í Pennsylvaniu mun hún ekki vinna upp forskot Obama.
Samkvæmt síðustu talningu AP fréttastofunnar hefur Obama nú tryggt sér stuðning 1.638 kjörmanna á flokksþingi Demókrataflokksins sem fram fer í ágúst en Clinton hefur tryggt sér stuðning 1.502 kjörmanna
Ef Clinton vinnur Pennsylvaniu hefur hún möguleika á að verða frambjóðandi ,ef hún fær nógu marga fulltrúa á flokksþingi demokrata. En ef hún tapar Pannsylvania er hún sennilega úr leik.
Að mínu mati skiptir engu máli hvor þeirra verður frambjóðandi.
Björgvin Guðmundsson
Clinton og Obama takast á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.