Meirihluti ber lítið traust til Seðlabankans

Í nýrri könnun Fréttablaðsins sögðut 51,8% þeirra sem tóku afstöðu  bera lítið eða mjög lítið traust til Seðlabankans. 31,9% sögðust bera nokkurt traust til bankans en 16,3 prósent bera mikið eða mjög mikið traust til hans.

Blaðið segir að í könnuninni hafi kjósendur Sjálfstæðisflokksins sagst bera mest traust til Seðlabankans, en 36,8% þeirra bera mikið eða mjög mikið traust til hans.  Minnst traust á Seðlabankanum er meðal kjósenda Frjálslynda flokksins, en tveir þriðju þeirra segjast bera lítið eða mjög lítið traust til bankans. Um sextíu prósent kjósenda Samfylkingar, Vinstri grænna og þeirra sem ekki gefa upp stuðning við flokk sögðust vera sama sinnis. Þá segist þriðjungur framsóknarfólks bera lítið eða mjög lítið traust til bankans og fjórðungur kjósenda Sjálfstæðisflokksins.

Þessi  k0nnun kemur ekki á óvart. Seððlabankinn hefur verið mikið til umræðu undanfarið vegna þess að bankanum hefur mistekist baráttan við verðbólguna og menn telja,að bankinn hafi sofið á verðinum. Hann hefði átt fyrir löngu að vera búinn að auka gjaldeyrisvarasjóð  sinn og hann hefði átt að stöðva gegndarlausar erlendar lántökur viðskiptabankanna.

 

 Björgvin Guðmundssoin


mbl.is Meirihluti ber lítið traust til Seðlabankanss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband