útlit fyrir , að hjúkrunarfræðingar gangi út

Ólíklegt er að sættir náist fyrir 1. maí og það mun hafa mikil áhrif á þjónustu við sjúklinga eins og hjartasjúklinga sem þurfa að leita aðstoðar á skurðdeildum spítalans,“ segir Sigurður Guðmundsson, landlæknir, um deilur á milli skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðinga og stjórnar Landspítala.

Ekkert miðar í samkomulagsátt í deilunni. „Það er enginn grundvöllur fyrir því að semja,“ segir Vigdís Árnadóttir, trúnaðarmaður skurðhjúkrunarfræðinga. „Við munum ekki hætta við vaktabreytingarnar,“ segir Anna Stefánsdóttir, settur forstjóri LSH.

Landlæknir segir erfitt að meta hversu lengi skurðdeildirnar geti haldið uppi neyðarþjónustu komi til uppsagna um hundrað hjúkrunarfræðinga. „Þolmörkin eru væntanlega nokkrir dagar en svo fer að gæta þreytu hjá þeim sem halda uppi þjónustunni,“ segir Sigurður.

Landlæknir ræddi við stjórnendur spítalans og starfsmenn í gær. Hann segir landlæknisembættið ekki blanda sér í kjaradeilur en þegar deilan fari að hafa áhrif á þjónustu við sjúklinga, „þá fer þetta að verða okkar mál,“ segir Sigurður.

„Við hófum samræður við starfsmenn deildanna fyrir fjórum árum og fólum fólki að vinna að ákveðnum hugmyndum sem ekki hefur gengið eftir,“ segir Anna Stefánsdóttir og vísar á bug orðum Erlu Bjarkar Birgisdóttur í Morgunblaðinu í gær um að hjúkrunarfræðingar hafi fyrst heyrt af breytingunum í janúar sl. „og við höfum tölvupósta sem sanna það,“ segir Anna. Neyðaráætlun verður kynnt opinberlega á miðvikudag.

Það er grafalvarlegt  mál,ef 96 hjúkrunarfræðingar ganga út. Landlæknir telur,að ekki  verði unnt að

halda uppi  bráðnauðsynlegri  þjónustu ( neyðarþjónustu) á spítalanum nema í fáa daga  eftir að 96 hjúkrunarfræðingar ganga út. Það er eitthvað mikið að á Landspítalanum og í yfirstjórn heilbrigðismála. Forstjórinn var flæmdur í  burtu þó öllum bæri saman um að hann væri mjög hæfur í starfi og hefði unnið gott starf.Það er skellt á róttækri breytingu á vaktafyrirkomulagi án samráðs við hjúkrunarfræðinga með þeim afleiðingum að þeir segja upp og hætta. Svona á ekki að reka fyrirtæki í dag.

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


mbl.is Stál í stál á Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband