Ingibjörg Sólrún i Svalbarða í gær

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,utanríkisráðherra,sýndi á sér nýja hlið í gær,er hún kom fram í Svalbarða,nýjum sjónvarpsþætti Þorsteins Guðmundssonar.Það var létt yfir henni,hún hló og skemmti sér og  hafði gaman af viðtali Þorsteins og nýjum sjónvarpsþætti hans.Þorsteinn tók ítarlegt  viðtal við Ingibjörgu Sólrúnu  í léttum dúr. Hann ræddi m.a. öll ferðalög hennar og hvort þau  væru nauðsynleg. Ingibjörg Sólrún svaraði þeirri spurningu vel og rökstuddi skilmerkilega hvers vegna nauðsynlegt væri fyrir utanríkisráðherrann þyrfti að fara í öll þessi ferðalög. Þáttur Þorsteins,Svalbarði,er nýstárlegur. Þetta er sæmilegur þáttur,Þorsteinn er sjálfur mjög skemmtilegur,mikill húmoristi og góður  leikari.

 

Björgvin  Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband