Spáir rýrnun kaupmáttar

Ég held að hagkerfið sé að fara að kólna tiltölulega hratt núna og ég held að Seðlabankinn lækki sína vexti tiltölulega hratt á árinu 2009,“ segir forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings. Ásgeir sagði offramboðið á fasteignum ekki hafa orðið jafn mikið og hann hefði óttast. Mestu varðaði að tryggja að hjól fasteignamarkaðarins héldu áfram að snúast.

„Það skiptir máli að fólk geti losað eignir og að það sé hægt að eiga viðskipti á þessum markaði,“ sagði Ásgeir, sem taldi raunlækkun fasteignaverðs geta orðið meiri en þau 14% sem bankinn spáði yrði verðbólgan viðvarandi.

Ásgeir sagði að miðað við núverandi ástand væri það „ábyrgðarleysi“ að ráðleggja tekjulágu fólki að taka 90% fasteignalán. „Enginn mannlegur máttur“ gæti komið í veg fyrir kaupmáttarrýrnun almennings næstu tvö árin.Ásgeir  spáir   því ,að kaupmáttur   rýrni næstu 2 árin.

Þetta er ljót spá en ekki mikið frábrugðin því,sem aðrir hagfræðingar spá.Allir sérfræðingar eru sammála um að samdráttur í efnahagslífinu sé hafinn og lífskjör muni rýrna og fasteignaverð lækka. Það er almenningur sem neitar að trúa þessu og eyðir jafnmikið og áður.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Kaupmáttur rýrnar í tvö ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband