Mánudagur, 5. maí 2008
NATO geri úttekt á nauðsynlegum varnarviðbúnaði Íslands
Franskar Mirage-herþotur á vegum Atlantshafsbandalagsins (NATO) lenda á Íslandi um ellefu leytið í dag til að standa vaktina við strendur landsins. Þær munu hafa eftirlit með flugi langdrægra rússneskra herflugvéla í grennd við íslenska lofthelgi.
Þetta er í fyrsta sinn að herþotur frá öðrum löndum en Bandaríkjunum eru á vakt hér við land. Að sögn Urðar Gunnarsdóttur, talskonu utanríkisráðuneytisins, verða Frakkarnir hér í um sex vikur, sem sé í lengra lagi. Þá sé í haust von á herþotum frá Kanada. Ennfremur stendur til að kynna frekar hvernig að eftirlitinu verður staðið.
Ég er mjög lítið hrifinn af þessu æfingaflugi NATO ríkja við Ísland. Mér finnst þetta að mestu sýndarmennska. Þó erlendar herflugvélar fljúgi æfingaflug við Ísland í stuttan tíma nokkrum sinnum á ári tryggir það ekki varnir Íslands.Þetta er táknrænt flug. Það sem þarf að gera er að láta NATO gera úttekt á því hvernig best sé að tryggja varnir Íslands,hvort hér þarf að vera varnarlið frá NATO eða hvort nægilegt er að vissar NATO þjóðir séu í viðbragðsstöðu og geti sent hingað lið með stuttum fyrurvara.
Björgvin Guðmundsson
Frönsku herþoturnar lenda um 11 leytið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Við Íslendingar erum vart í nokkurri stöðu til að krefja bandalagsþjóðir okkar um hersveitir til að verja okkur sérstaklega.
Ábyrgðin á öryggi þjóðarinnar er í höndum íslenskra stjórnvalda en ekki ríkja Atlantshafsbandalagsins. Ef hér þarf að vera varnarlið þá þarf það að vera íslenskt.
Pétur Guðmundur Ingimarsson (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 11:21
Trygging Íslands felst mest í þeirri staðreynd að við erum á eyju og hefur ákveðin fælingarmátt þess vegna. Ameríski herinn varð þarflaus þegar herflugvélr og risakafbátar USA voru orðnar nógu þróaðar hernaaðarlega séð fyrir utan að stríðsrekstur USA er farin að hafa áhrif á allt efnahagslíf í heiminum í dag.
Svo það var kannski sparnaður sem gerði það að verkum að herinn fór. Það er fullt af öðru samstarfi sem gerir það nauðsynlegt að vera með í NATO. USA og herlönd taka sínar eigin ákvarðanir og Ísland verður aldrei spurt um eitt eða neitt og munu aldrei geta haft nein áhrif.
Sumir samningar um hermál og varnarmál við Íslendinga eru sýndarmennska nákvæmlega eins og þetta flug er. Við munum ekki ráða miklu um herbrölt nokkursstaðar í veröldinni. Hvað ættu rússneskar herflugvélar svo sem að gera til með þessu flugi sínu? Ekki neitt.
Rússar eiga ekki peninga til að fara í nein stríð og USA er að verða blankt. Mér finns allt í lagi að vita af einhverjum hermönnum langt í burtu sem geta komið með stuttum fyrirvara ef einhverju andi langaði til að eignast þessa eyju.
Óskar Arnórsson, 5.5.2008 kl. 11:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.