Mikill áhugi á teiknisamkeppni fyrir börn

Úrslit liggja fyrir í teiknisamkeppni Alþjóðalega skólamjólkurdagsins. Mjólkursamsalan stendur fyrir keppninni en þátttakendur eru nemendur í 4. bekk í grunnskólum landsins. Mikill fjöldi teikninga barst í keppnina en tíu nemendur fengu viðurkenningu fyrir teikningar sínar. Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur síðasta miðvikudag í september ár hvert að undirlagi Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, samkvæmt tilkynningu.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra er formaður dómnefndar teiknisamkeppni Alþjóðlega skólamjólkurdagsins. Hún tilkynnti fyrir skömmu hvaða tíu teiknarar hlutu verðlaun í samkeppninni. Verðlaun er veitt fyrir þær tíu myndir sem þóttu skara fram úr. Hver verðlaunahafanna fékk 25 þúsund krónur, sem renna í bekkjarsjóð vinningshafana.

Vinningshafarnir eru:Arngrímur Guðmundsson,Hlíðaskóla Bjarney Björt Björnsdóttir, Fellaskóla á Fljótdalshéraði; Þuríður Nótt Björgvinsdóttir, Fellaskóla á Fljótdalshéraði; Álfey Sól Haraldsdóttir, Hvaleyrarskóla; Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir, Grunnskóla Hornafjarðar; Andrea Thorsteinsson, Flúðaskóla; Camilla Rós Þrastardóttir Grunnskóla Stykkishólms; Hróbjartur Höskuldsson, Hvassaleitisskóla; Kjartan Tryggvason, Hvassaleitisskóla;  og Anna Jónína Guðmundsdóttir. Grunnskóla Önundarfjarðar.

Það er ánægjulegt hvað mikill áhugi er meðal íslenskra skólabarna á teikningu. Margir  efnilegir teiknarar tóku þátt í samkeppninni. Ef  til vill eru þar á meðal myndlistarmenn framtíðarinnar.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

Fara til baka Til baka


mbl.is Tíu börn fengu viðurkenningar fyrir teikningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband