Sunnudagur, 18. maí 2008
Hræðsluáróður Geirs um ESB
Geir H.Haarde talaði m.a. um ESB á fundi í Valhöll í gær. Þar sagði hann,að ef Ísland hefði verið í ESB nú hefði ekki verið unnt að gera neitt í efnahagsmálum annað en að auka atvinnuleysi. Ekki hefði verið unnt að breyta vöxtum eða gengi, það væri í höndum Seðlabankans í Frankfurt ef við værum í ESB.Þetta er hræðsluáróður hjá Geir. Hann er að reyna að hræða sjálfstæðismenn frá því að taka afstöðu með ESB. En ég er hissa á Geir að falla í þá gryfju að beita þessum " billegu" rökum.
Lítum á málið: Ef Ísland hefði verið í ESB hefðum við aldrei lent í þeirri stöðu,sem við erum í núna.Vextir hefðu þá verið lágir eða þeir sömu og í evrulöndum og mikið hagstæðari almenningi.Himinháir vextir hefðu þá ekki lokkað erlenda fjárfesta hingað til þess að kaupa hundruð milljarða í krónubréfum,sem síðan voru skyndilega seld og orsökuðu mikið gengisfall. Slíkar sviptingar gerast ekki hjá ESB.Gengið hefði þá verið stöðugt til hagsbóta fyrir útflutningsatvinnuvegina og allan almenning.M.ö.o: Slíkt ástand og hér er nú skapast ekki í ríkjum ESB. Að vísu verður að viðurkenna,að atvinnuástand er misjafnt í löndum ESB og í sumum löndum talvert atvinnuleysi.En þannig var það einnig áður en löndin gengu í ESB.
Atvinnuástand hefur verið gott hér um langt skeið en áður þekktum við atvinnuleysi,m.a. þegar markaðir brugðust erlendis og verð féll á afurðum okkar ytra. Ef stöðugleiki er í efnahagsmálum,vextir lágir og gengið stöðugt er auðveldara að byggja upp atvinnulíf og aukna vinnu en ef vextir rjúka upp úr öllu valdi og gengið sveiflast upp og niður.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Nákvæmlega rétt, Björgvin. Það þekkja allir sem eitthvað vilja vita hvernig haldið hefur verið á fjármálastjórninni undanfarin ár. Forsætisráðherra er bara að skjóta sig í fótinn með svona klaufalegum útskýringum.
Þórir Kjartansson, 18.5.2008 kl. 10:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.