Margir krakkar í húsdýra- og fjölskyldugarðinum

Stöð 2 bauð áskrifendum og fjölskyldum þeirra frítt í húsdýra-og fjölskyldugarðinn. Þetta var gott framtak hjá stöðinni. Gífurlegur fjöldi krakka mætti og það var góð stemmning enda skemmtiatriði og fríar pulsur og kók. En það var einn galli á þessu. Það var svo gífurlegur fjöldi,að biðraðir voru alltof langar og margir krakkar gáfust  upp á því að bíða og komust því ekki í tækin. Sennilega væri skynsamlegast fyrir Stöð 2  að hafa þetta í tvennu eða þrennu lagi næst.

Sonarsonur minn,Arngrímur Guðmundsson, fór í garðinn ásamt pabba sínum og skemmti sér vel enda þótt hann kæmist ekki í nein tæki.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband