Föstudagur, 30. maí 2008
Geir og Ingibjörg Sólrún heimsækja jarðskjálftasvæðin
Þau Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, eru á Selfossi og eiga þar nú fund með fulltrúum björgunarsveita, almannavarnanefnda og sveitarfélaga á skjálftasvæðinu.
Ráðherrarnir segjast vilja afla upplýsinga um um stöðu mála á svæðinu. Gert er ráð fyrir að þau heimsæki fjöldahjálparstöðina í Vallaskóla á Selfossi í kjölfarið og ræði við fulltrúa Rauða kross Íslands. Þá munu þau væntanlega skoða ummerki skjálftans í Ölfusi.
Það er vel til fundið,að oddvitar ríkisstjórnarinnar skuli heimsækja jarðskjálftasvæðin..Þau geta þá séð ástandið með eigin augum og rætt við heimamenn.Forseti Íslands og forsetafrú fóru einnig til Hveragerðis í gærkveldi og ræddu við heimamenn.
Björgvin Guðmundsson
Ráðherrar á fundi með heimamönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.