Jarðskjálfti 4 á Ricter í kvöld

Snarpir eftirskjálftar hafa orðið í Ölfusi í kvöld. Fyrst urðu tveir skjálftar, sem báðir voru um 4 stig á Richter kl. 22:05 og 22:07. Þá urðu tveir skjálftar klukkan 22:51 og 23:04. Fyrri skjálftinn var ríflega 3,5 að stærð og sá seinni líklega 4,2 til 4,3 að stærð. Allir fundust þeir vel á svæðinu. 

Að sögn Veðurstofunnar áttu  skjálftarnir upptök sín við norðvesturenda Ingólfsfjalls og teljast til eftirskjálfta á þeirri sprungu, sem gekk til í meginskjálftanum í gær. 

Af þessu er ljóst,að  skjalftahrinunni er ekki lokið.En visindamenn virðast sammála um að ekki komi eins stór skjálfti eins og í gær í bráð  en sá skjálfti var 6,3 á ísl. mælikvarða.

 

 Björgvin Guðmundsson


mbl.is Snarpir eftirskjálftar í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband