Krónan styrkist um 4%

Krónan styrktist um 4% í dag. Lokagildi gengisvísitölunnar er 161 stig en var 167,80 stig við opnun markaða. Veltan á millibankamarkaði nam 65,7 milljörðum króna, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis. Gengi Bandaríkjadals er 80,45 krónur, evran er 125,29 krónur og pundið er komið niður fyrir 160 krónur á ný. Er 158,25 krónur.

Styrking krónunnar í dag um 4% er næst mesta styrking hennar á einum degi  frá því að flotgengisstefnan var tekin upp í mars 2001.

Það er merkilegt,að krónan skuli hafa styrkst svo  mjög

í dag sem raun ber vitni.Engin leið er að spá fyrir um framvindu krónunnar. Flestir sérfræðingar telja þó,að gengislækkun krónunnar muni ekki nema að litlu leyti ganga til baka. Fyrir daginn í dag  hafði  krónan veikst um 39 % frá áramótum.

Björgvin Guðmundsson 

Fara til baka


mbl.is Krónan styrktist um 4%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband