Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Tregðast við að lækka bensín og olíuvörur
Tonn af 95 oktana blýlausu bensíni kostaði á markaði í Rotterdam 1028 dali á þriðjudag. Þá hafði það lækkað um tæpa 155 dali, 13%, frá því að hæsta verð mánaðarins náðist á mánudag í síðustu viku, hinn 14. júlí. Sama dag var hæsta heimsmarkaðsverð á hráolíu skráð en í viðskiptum innan dags fór fatið af hráolíu upp fyrir 147 dali. Á þriðjudag var dagslokaverð á hráolíu um 128 dalir, 12% lægra en dagslokaverð 14. júlí, sem var 145,2 dalir.
Þrátt fyrir þetta hefur verð á 95 oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu hérlendis aðeins lækkað um 5 krónur síðan 14. júlí miðað við upplýsingar á vef Skeljungs, sem eitt íslensku olíufélaganna býður upp á sögulegar verðupplýsingar á vefnum. Fimm króna lækkun jafngildir 3% miðað við verðið 14. júlí.
Við höfum verið að bíða eftir birgðatölum frá Bandaríkjunum. Þær koma á miðvikudögum í hverri viku og í kjölfarið getur heimsmarkaðsverð sveiflast mikið, segir Már Erlingsson, innkaupastjóri hjá Skeljungi, og segist ekki telja Skeljung hafa brugðist treglega við breytingum á heimsmarkaðsverði. Skömmu síðar lækkaði Skeljungur verð á eldsneyti um 2 krónur.
Inntur eftir því hvort félagið hefði brugðist við verðhækkun á markaði með verðhækkun, á meðan beðið væri eftir birgðatölum segir hann þá spurningu ekki eiga við þar sem verð hækkaði ekki á heimsmarkaði.
Við bjóðum ætíð samkeppnishæft verð á eldsneyti, segir Samúel Guðmundsson, framkvæmdastjóri vörustýringar hjá Olís, og bendir á að félagið hafi dregið til baka 4 króna verðhækkun í liðinni viku þar sem keppinautar þess hækkuðu verð minna en Olís. Þar með hafi félagið tekið á sig hluta af verðhækkunum.
Þess er skemmst að minnast að þegar Olís hækkaði verð um 6 krónur í liðinni viku sagði Samúel í samtali við mbl.is: Krafan er einfaldlega sú að útsöluverð hérlendis endurspegli heimsmarkaðsverðið og því hækkar það og lækkar í takt við breytingar á heimsmarkaði. Þá hafði heimsmarkaðsverð á bensíni hækkað um 85 dali á tonnið að sögn Samúels.(mbl.is)
Að mínu mati tregðast olíufélögin við að lækka verð á olíuvörum en hækka fljótt ef verð hækkar ytra.Það er mikil spurning hvort verðlag á olíuvörum á að vera frjálst. Ef olíufélögin kunna ekki með frjálsa verðlagningu að fara munu þau missa hana.
Björgvin Guðmundsson
»Bensínverð úr takti við heimsmarkaðsverð? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.