Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Obama fagnað mjög í Berlín
Knútur Kristinsson, tónlistarmaður, er á tónleikaferðalagi í Berlín og var viðstaddur ræðu Obama sem lauk fyrir stundu. Segir hann að upplifunin hafi verið ótrúleg.
,,Það var ótrúleg stemning á svæðinu, ekki ósvipuð því og rokkstjarna væri komin á staðinn. Svavar sagði meirihluta viðstaddra hafa verið ungt fólk. Víða mátti sjá skilti með nafni Obama og setningum eins og Barackn roll enda hefði allt umhverfið verið eins og risastórir tónleikar væru í borginni en ekki stjórnmálamaður.
,,Alls staðar mátti sjá bjórsölustanda, sölumenn með ýmsan varning eins og stuttermaboli með mynd Obama, derhúfur og annan varning. Obama helgaði ræðu sína utanríkismálum og sagði að Berlín væri táknmynd frelsisins. Hann sagði að mikilvægt væri að Bandaríkjamenn áttuðu sig á alheimssamhengi fátæktar og umhverfisvanda og að rætur ýmissa vandamála sem steðjuðu að Bandaríkjamönnum væri að finna í fátækt. Það væru hagsmunir allra að vinna í sameiningu að því að leysa vandamál eins og fátækt og umhverfisvandamál. Dreifa þyrfti betur auðæfum heimsins og vinna að jöfnuði. Bandaríkjamenn þyrftu að skilja að rætur hryðjuverka lægju oft í fátækt. Þessir gömlu bandamenn, Evrópa og Bandaríkin, þyrftu að vinna saman.
Undirtektir almennings voru gríðarlega góðar.(mbl.is)
Margir aðrir bandarískir stjórnmálamenn hafa talað í Berlín en þeirra frægastur var Kennedy.Obama hefur verið að kynna sig í Evrópu og Asiu og afla sér þekkingar á utanríkismálum.En það háir honumhelst,að hann hefur ekki mikla þekkingu á alþjóðamálum.
Björgvin Guðmundsson
Obama tekið sem rokkstjörnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.