Föstudagur, 25. júlí 2008
Dýrustu hamborgarar í heimi ekki langur á Íslandi!
Norðmenn sitja nú stoltir í efsta sæti Big Mac vísitölunnar, sem breska tímaritið Economist reiknar út árlega. Hafa Norðmenn náð efsta sætinu af Íslendingum sem oftast hafa verið afar ofarlega á listanum. Nú er Ísland í 3.-4. sæti ásamt Dönum en á eftir Norðmönnum, Svíum og Svisslendingum.
Í vísitölunni er borið saman verð á Big Mac-hamborgaranum víða um heim. Samkvæmt henni er gengi íslensku krónunnar gagnvart Bandaríkjadal 67% hærra en það ætti að vera, þ.e. ef Big Mac kostaði jafnmikið og í Bandaríkjunum. Þetta hlutfall er hins vegar 121% í Noregi, 79% í Svíþjóð og 78% í Sviss.(mbl.is)
Íslendingar hafa verið í efsta sæti og státað af því að selja dýrustu hamborgara í heimi. Nú eru Norðmenn þessa heiðurs aðnjótandi.Þetta er ekkert grin. Þetta innsiglar hátt verðlag hér á landi. Við erum með eitt hæsta verð í heimi á matvælum.Nú deilum við heiðrinum með Norðmönnum.
Björgvin Guðmundsson
Ísland tapar efsta sætinu í Big Mac vísitölunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:59 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.