Laugardagur, 26. júlí 2008
Heilindi borgarstjóra dregin í efa
Svandís Svavarsdóttir og Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúar VG, segja að borgarstjóri verði að una því að heilindi hans séu dregin í efa. Hann fari að auki með rangt mál í yfirlýsingum sínum varðandi Kárahnjúkavirkjun.
Yfirlýsing þeirra er eftirfarandi:
Á dögunum voru þau boð látin út ganga frá skrifstofu borgarstjórans í Reykjavík að heilindi hans skuli ekki dregin í efa. Í lýðræðisþjóðfélagi, þar sem skoðanafrelsi á að ríkja, verður jafnvel borgarstjórinn í Reykjavík að sæta því að málflutningi hans sé mótmælt og jafnvel heilindin í efa dregin.
Í yfirlýsingu borgarstjóra frá í dag, vegna Bitruvirkjunar, segir borgarstjóri m.a: R listinn samþykkti á sínum tíma þátttöku Reykjavíkurborgar í Kárahnjúkavirkjun." Borgarstjóra hlýtur að vera fullljóst að þessi fullyrðing stenst ekki. Kárahnjúkavirkjun var samþykkt í borgarstjórn með 9 atkvæðum gegn 5 en einn fulltrúi sat hjá. Borgarfulltrúar úr Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki (8 talsins) auk þáverandi borgarstjóra, núverandi formanns Samfylkingarinnar, samþykktu ábyrgð borgarinnar á virkjuninni. Báðir borgarfulltrúar úr Vinstri grænum, tveir borgarfulltrúar úr Samfylkingu auk núverandi borgarstjóra greiddu atkvæði gegn virkjunni. Rétt skal vera rétt.
Málflutningur borgarstjóra einkennist ekki af heilindum" þegar hann hagræðir sannleikanum í því skyni að varpa dýrðarljóma á sjálfan sig."(mbl.is)
Nokkuð hefur borið á því að borgarstjóri færi frjálskega með staðreyndir eins og fram kemur í yfirlýsingu borgarfulltrúa VG.Æskilegt er,að sá,sem gegnir svo háu embætti sem embætti borgarstjóra vandi málflutning sinn svo hann standist.
Björgvin Guðmundsson
Segja borgarstjóra fara með rangt mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.