471 sagt upp í hópuppsögnum

Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun hefur um 471 starfsmanni verið sagt upp í fjöldauppsögnum í júní og júlí. Í fréttum í gær kom fram að 57 starfsmönnum Ræsis var sagt upp sem og 57 starfsmönnum hjá leikfangaverslunum Just 4 Kids.

Þrátt fyrir að veðrið leiki við landsmenn þessa dagana er fullt af fólki sem hefur misst vinnuna það sem af er sumri. Í júní var tilkynnt um fjöldauppsagnir hjá þremur fyrirtækjum. Hjá byggingarfélaginu Byggt var 27 starfsmönnum sagt upp, 207 var sagt upp hjá Icelandair og flugþjónustan sagði upp 70-75 manns.

Nú í júlí hafa komið inn á borð til vinnumálastofnunar uppsagnir hjá Ræsi og Mest. 57 starfsmönnum var sagt upp hjá Ræsi og á bilinu 60-80 hjá Mest. Þá kom fram í fréttum Sjónvarps í gær að 57 starfsmönnum var sagt upp í tveimur verslunum Just 4 kids, sem opnuðu fyrir rúmlega átta mánuðum.

Þessar miklu uppsagnir eru tl marks um niðursveifluna ög  samdráttinn  í þjóðfélaginu.Það er byrjað að sverfa mjög að hjá mörgum.

 

Björgvin Guðmundsson





« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband