Mjólkin ódýr hér á landi

Óvíða í Vestur-Evrópu er nýmjólk jafnódýr og á Íslandi. Í Danmörku kostar nýmjólk um 150 kr. lítrinn og í Noregi kostar hann nálægt 200 kr. Hér á landi er mjólkurlítrinn seldur á um 90 kr.

Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, segir að verð á mjólk hafi lengi verið í lægri kantinum hér á landi í samanburði við nágrannalöndin. Eftir að gengi krónunnar féll í vor hafi verðmunur á mjólk hér á landi og í nágrannalöndunum aukist enn. Mjólkurverð núna sé t.d. tvöfalt hærra í Noregi en hér.

Opinber verðlagning er á mjólk hér á landi og hefur það sjónarmið verið ráðandi í verðlagsnefnd búvara að halda eigi verði á nýmjólk lágri. Baldur Helgi segir að verð á flestum unnum mjólkurvörum sé frjálst og þær vörur séu almennt hærra verðlagðar. Samanburðurinn milli landa sé ekki eins hagstæður fyrir Íslandi á þessum vörum. Hann segir að horft til framtíðar sé skynsamlegra að fylgja svipaðri stefnu og nágrannalöndin sem séu með hærra verð á nýmjólk en lægra verð á ferskum mjólkurvörum.

Baldur Helgi bendir á að þegar frelsi í viðskiptum með búvörur aukist verði mestur innflutningur á unnum mjólkurvörum. Það sé því rökrétt að reyna að halda verði á þeim samkeppnishæfu sem myndi þýða að verð á nýmjólk myndi hækka.

» Árið 2006 var gerður samanburður á verði matvæla hér á landi og í Evrópusambandinu. Niðurstaðan var að matur og drykkjarvörur væru 64% dýrari á Íslandi en í ESB. Mjólkurvörur voru 49% dýrari.
» Í vor felli gengi krónnunar um 40% og matarverð í Evrópu hefur auk þess hækkað. Munur á verðlagi á Íslandi og landa Evrópusambandsins hefur því minnkað verulega  (mbl.is).

Það er athyglisvert ,að mjólkin er tvöfalt dýrari í Noregi en hér og ef til vill er mjólkin ódýrust hér á landi. Matvæli almennt eru hins vegar mjög  dýr hér á landi.Nú hefur það bætst við,að kaupið hefur verið fellt með gengishruni krónunnar.Í raun er gengislækkun ekkert annað en kauplækkun.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Björgvin Guðmundsson

 


mbl.is Er ódýrasta mjólkin á Íslandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband