Fimmtudagur, 7. ágúst 2008
Olíuhreinsistöð enn á dagskrá
Ólafur segir gott hljóð í samstarfsaðilum fyrirtækisins í Rússlandi en að ekki sé hægt að tímasetja hvenær næsta skref verði stigið. Það yrði væntanlega umhverfismat á framkvæmdinni. Næsta skref yrði væntanlega umhverfismat en af því að þetta er ekki á okkar valdi þá vil ég ekki tímasetja það. Við ýtum á og vonum að þetta gerist sem allra fyrst.Vegna þess að þetta eru það stórir aðilar og málið umfangsmikið þá tekur þetta lengri tíma. Það eru fleiri sem koma að ákvörðuninni og ferlið er svolítið flóknara en við þekkjum hér í okkar þjóðfélagi.(mbl.is)
Hljótt hefur verið um olíuhreinsistöð að undanförnu en ljóst er,að málið er enn á dagskrá og unnið að því.Má búast við,að umræður um málið blossi upp hér á landi þegar óskað verður umhverfismats.
Mikil andstaða er við ráðagerðina og telja margir,að umhverfisspjöll geti hlotist af byggingu stöðvarinnar.
Björgvin Guðmundsson
Olíuhreinsistöð: Umhverfismat er næsta skref | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég vil ekki vera dónalegur, en hefur þú álit á framkvæmdinni? Ég gat ekki lesið neitt úr færslunni.
Villi Asgeirsson, 7.8.2008 kl. 11:36
Sæll!
Í mars sl. skrifaði ég eftirfarandi:
Ekki líst mér á að reisa olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum.Við Vestfirði eru einhver bestu fiskimið ndsins og ef olíuslys verður og mikil olía fer í sjóinn eru þessi fiskimið i hættu.Þarna er einnig mikil náttúrufegurð og olíuhreinsunarstöð fer illa þarna. Ef nauðsynlegt er að reisa hana ætti hún að rísa annars staðar.
Ég skil vel ,að Vestfirðingar leiti að nýjum atvinnutækifærum eftir að kvótakerfið hefur farið mjög illa með byggðirnar vestra.Það,sem á að gera,er að breyta kvótakerfinu enda verður að gera það eftir úrskurð mannréttindanfndar Sþ. Það verður að opna kerfið fyrir nýjum aðilum og það verður að breyta kerfinu þannig að allir sitji við sama borð. Það verður að afturkalla veiðiheimildir og setja á uppboð eða úthluta að nýju. Það þarf að opna fyrir smábátunum,það mundi hjálpa Vestfirðingum mikið.
Með kveðju
Björgvin Guðmundsson
Björgvin Guðmundsson, 7.8.2008 kl. 13:43
Gott að heyra. 100% sammála.
Villi Asgeirsson, 7.8.2008 kl. 14:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.