Föstudagur, 15. ágúst 2008
Ingibjörg Sólrún: Uppvakningur í borgarstjórn
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, kallar nýjan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur uppvakning. Geir Haarde forsætisráðherra fagnar meirihlutanum. Hann neitar því að það hafi verið mistök að stofna til meirihlutasamstarfs með Ólafi F. Magnússyni.Uppvakningar eru verri en draugarnir sjálfir.
Þetta er vel að orði komist hjá Ingibjörgu Sólrúnu.Nýi meirihlutinn er svo sannarlega uppvakningur.Fráfarandi meirihluti var orðinn eins og vofa eða draugur.Hvort uppvakningurinn reynist betur á eftir að koma í ljós en samkvæmt þjóðtrúnni voru uppvakningar verri en draugarnir.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.