Vöruskiptahalli í júlí

Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 34,1 milljarð króna og inn fyrir 51,6 milljarða króna fob (55,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 17,5 milljarða króna. Í júlí 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 15,6 milljarða króna á sama gengi.

Fyrstu sjö mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 241 milljarð króna en inn fyrir 282,8 milljarða króna fob (307,1 milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 41,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 65,0 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 23,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.
 
i

Fyrstu sjö mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 27,8 milljörðum eða 13,0% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 50,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 44,8% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 37,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,7% minna en á sama tíma árið áður.  Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka og í útflutningi skipa og flugvéla.

 

Fyrstu sjö mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 4,7 milljörðum eða 1,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum.(mbl.is)

Samkvæmt þesssum tölum gengur hægt að  koma á jafnvægi í vöruskiptum okkar við útlönd. Halli  vöruskiptum við útlönd nam  42 milljörðum fyrstu 7 mánuði ársins. Þrátt fyriir gengislækkun  og hátt eldneytisverð  flytja Íslendingar meira inn en út. Það er eins og venjuleg efnahagslögmál gildi ekki á Íslandi.

 

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


mbl.is Aukinn vöruskiptahalli í júlí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Helgason

Nú erum við með 3 stk álver með um 800 þús tonna framleiðslu af áli.   Þau flytja inn rúm 2 milljónir tonn/ári af hráefni . Þetta er væntanlega skrifað á innflutning Íslendina þó allt þetta magn sé okkur óviðkomandi Sama er með álið frá þeim sem,er flutt út - það er ekki okkar eign og okkur óviðkomandi. En báðar tölurnar koma inn og út hjá okkur. Auðvitað er virðisaukinn frá hráefni yfir í útflutt ál með hjálp ódýru orkunnar okkar- mjög mikill- fyrir álverseigendurna.   Þá er það spurningin hvað þungt þessi hráefnainnflutningur til álveranna hafi mikið vægi í óhagstæðum vöruskiptajöfnuði okkar ?  Einkum er ekki komið jafnvægi á álverið á Reyðarfirði- meira inn en út....  Þarf ekki að halda þessum tveimur stærðum sér frá okkar eigin vörum út og inn ?

Sævar Helgason, 29.8.2008 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband