Íslendingar eru gjafmildir.Söfnuðu fyrir skóla í Jemen

Alls söfnuðust 18,2 milljónir króna á glæsimarkaðnum sem haldinn var í Perlunni í gær.. Markaðurinn var haldinn til stuðnings uppbyggingar skóla fyrir börn og konur í Jemen. Áætlað er að skólinn kosti um þrjátíu milljónir króna en auk þess sem safnaðist í dag á markaðnum hafa borist um tíu milljónir króna í frjálsum framlögum og því ljóst að bygging skólans er í höfn.

Markaðurinn verður einnig starfræktur í Perlunni á morgun milli klukkan 12 og 17:00.

Allur ágóði af sölunni  rennur til uppbyggingar skóla fyrir börn og konur í Jemen, fátækasta ríki arabaheimsins. Jóhanna Kristjónsdóttir er driffjöður verkefnisins. Undanfarin þrjú ár hefur Fatimusjóður Jóhönnu styrkt börn í Sanaa, höfuðborg Jemens, til að komast í skóla með árlegu framlagi. Áhugasamir stuðningsforeldrar hafa lagt verkefninu lið frá upphafi og styrkja íslenskar fjölskyldur nú 126 börn til náms.(mbl.is)

Þetta er frábært framtak.Hér hafa Íslendingar enn einu sinni sýnt,að þeir eru gjafmildir og vilja styðja góð málefni  innan lands sem erlendis.Ég er mjög hrifinn af þessu framtaki og tel,að konurnar sem beittu sér fyrur söfnuninni eigi þakkir skilið.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Skólinn er í höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Björgvin,

Ég vil gjarnan gerast styrktaraðili og styðja stúlku (stúlkur) í Jemen og taka með því þátt í því góða starfi sem Fatímusjóður stendur að þar.

Ég vil helst gerast styrktaraðili með því að greiða fastar mánaðargreiðslur. Getur þú vinsamlegst sagt mér hvert ég á að snúa mér (finn þetta ekki á netinu - a.m.k. ekki svona í fljótheitum).

Með kveðju,

Ragnheiður Hraffnkelsdóttir

Ragnheiður Hrafnkelsdottir (IP-tala skráð) 31.8.2008 kl. 21:04

2 Smámynd: Björgvin Guðmundsson

Það voru þrjár konur,sem voru í fyrirsvari fyrir söfnuninni,þær Jóhanna Kristjónsdóttir,Sólveig Pétursdóttir og Guðrún Ögmundsdóttir hjá menntamálaráðuneytinu.

Með kveðji

Björgvin

Björgvin Guðmundsson, 31.8.2008 kl. 22:54

3 identicon

Ragnheiður, Þú getur haft samband við Jóhönnu (jemen@simnet.is) og kíkt á heimasíðu hennar http://johannaferdir.blogspot.com - þar hefur þú allar upplýsingar til að styrkja stúlku, m.a. lista af þeim krökkum sem við styrkjum nú þegar (132 alls). Það er VIMA (vináttu- og menningafélag Miðausturlanda) sem hefur haft veg og vanda af Perlumarkaðnum ásamt aðgerðahóp svokölluðum, með Ásdísi Höllu Bragadóttur og Rannveig Guðmundsdóttur í forsprakki - en það voru svo ótrúlega margir, bæði frægir og óþekktir (!) sem lögðu hönd á plóginn til að gera þetta mögulegt að það var aðdáunarvert.

Dominique

Dominique (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband