Föstudagur, 3. október 2008
Óvarlegt tal Gylfa Magnússsonar
Gylfi Magnússon dósent sagði í viðtali við Mbl. í morgun,að Ísland gæti orðið gjaldþrota ef fjármálamarkaðir opnuðust ekki fljótlega. Þetta er mjög óvarlega tal af af dósent við Háskólann.Allar líkur eru á því að Ísland geti fengið lán hjá einhverjum erlendum seðlabanka.Ef allt um þrýtur getur Ísland fengið lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Honum er skylt að veita Íslandi aðstoð ef þörf krefur.Það er að vísu svo,að efnuð ríki eins og Ísland leita yfirleitt ekki aðstoðar þar en nauðsyn brýtur "lög". Dósentinn hefur skotið almenningi skelk í bringu með óábyrgu tali.
Einnig hafa blöðin verið að skrifa um yfirvofandi vöruskort ,þar eð ekki sé til nægur gjaldeyrir. En í Seðlabankanum er til nægur gjaldeyrisvarasjóður fyrir 8-9 mánaða innflutning án þess nokkrar útflutningstekjur komi á móti. Það á ekki að hræða almenning að óþörfu.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:22 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.