Róttækar tillögur Gylfa Zoega og Jóns Danielssonar

Hagfræðingarnir Gylfi Zoega og Jón Danielsson  settu fram róttækar og athyglisverðar tillögur til lausnar vanda atvinnulífs og heimila í þættinum Silfur Egils í dag. Þeir hafa áður skrifað greinar um málið.Í stuttu máli sagt er tillaga þeirra sú,að  til þess að forða gjaldþroti heimila og því að fólk missi íbúðir sínar muni íbúðalánasjóður og lífeyrissjóðir eignast  hluti í íbúðum fólks ( breyta skuldum í eignahluta).Þeir leggja síðan til,að svipuð leið verði farin til þess að bjarga fyrirtækjum frá gjaldþroti. Bankarnir eignist hluti í fyrirtækjum,þe. skuldum verði breytt í hlutafé. Þetta er vissulega róttæk hugmynd en mér líst vel á hana. Ef til vill er þetta hið eina sem getur bjargað heimilum og fyrirtækjum.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband