Sunnudagur, 28. desember 2008
Auka þarf jöfnuð og draga úr misrétti
Páll Skúlason,heimspekingur,var gestur Evu Maríu í þætti hennar í Sjónvarpinu í kvöld.Páll kom víða við og gagnrýndi margt í islensku samfélagi undanfarin ár. Hann sagði,að ójöfnuður hefði aukist
i þjóðfélaginu svo og misrétti.Hann sagði,að markaðshyggjan hefði valdið miklum skaða í aðdraganda bankahrunsins og hún hefði smitað stjórnmálin.Allt hefði verið metið til peninga.Páll sagði,að stjórnmálamenn bæru ábyrgð á því hvernig komið væri í íslenku þjóðfélagi.Þeir yrðu að axla ábyrgð.Óvíst væri hvort þeir,sem nú færu með stjórn landsins nytu trausts til þess að stjórna áfram.
Björrgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.