Rannsóknarnefnd fær afrit af bréfum forseta í þágu fjármálastofnana

Það hefur verið vitað,að forseti Íslands beitti sér í nokkrum tilvikum í þágu útrásarvíkinga.Og svo virðist nú sem forsetinn hafi  einnig beitt sér í þágu fjármálastofnana.M.a. skrifaði forsetinn til Bill Clintons og leiðtoga Kína.Ég tel eðlilegt að rannsóknarnefndin kanni þessi bréf enda þótt ólíklegt megi telja,að forsetinn hafi farið út fyrir verksvið forsetaembættisins í þeim bréfaskrifum.

Vissulega má deila um það  hve langt forsetinn eigi að ganga í því efni að stuðla að viðskiptum íslenskra aðila við erlenda aðila.Ég tel í lagi að forsetinn sé formaður í viðskiptasendinefndum sem fara t.d. til landa í Asíu og Afríku. En ég tel óeðlilegt,að forsetinn beiti sér  í þágu einstakra fyrirtækja.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Fengu afrit af bréfum forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband