Fimmtudagur, 22. október 2009
Kaupmáttur hefur minnkað um 8% sl. 12 mán.
Launavísitala í september hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 1,9% en á sama tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um 10,8% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 15,7%.
Vísitala kaupmáttar launa í september 2009 lækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 8%, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.(mbl.is)
Þessar tölur eru algert lágmark. Margir hafa misst eftirvinnu og stór hópur hefur misst vinnuna. Báðir þessir hópar hafa orðið fyrir meiri kjaraskerðingu en 8%.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.