Sunnudagur, 23. mars 2008
Hörð gagnrýni á Þróunarsamvinnustofnun Íslands
Stefán Þórarinsson, stjórnarformaður Nýsis hf., gerir alvarlegar athugasemdir við starfshætti Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í viðtali í Morgunblaðinu í dag og nefnir nokkur dæmi um verkefni sem stofnunin hafi hlaupið frá í miðjum klíðum. Telur hann jafnframt að öðrum sé ekki fylgt nægilega vel eftir og sitji heimamenn þá eftir með óleystan vanda.
Hann segir að starfsemi ÞSSÍ hafi lítið breyst frá stofnun hennar 1982. Íslendingar fáist einkum við smá og auðveld verkefni sem hafi lítil áhrif í samfélaginu. Segir hann að Íslendingar komi jafnvel á fót stofnunum sem verði byrði á þegnum þeirra ríkja sem aðstoðina þiggja.
Stefán hefur lagt fram ítarlegar tillögur um breytingar á ÞSSÍ. Hann leggur m.a. til að stofnaður verði sérstakur þróunarlánasjóður með þátttöku opinberra aðila og einkafyrirtækja. Telur hann að með slíkum sjóði væri hægt að efla mjög gagnkvæma samvinnu Íslands við þróunarríkin. Á þann hátt getum við orðið meðbræðrum okkar og -systrum í þróunarlöndunum að mestu liði, segir Stefán
Það er mjög sjaldgæft að fram komi jafn hörð gagnrýni á opnibera stofnun og gerist með grein Stefáns.Það rifjast upp,að Valgerður Sverrisdóttir vildi sem utanríkisráðherra fella ÞSSÍ undir ráðuneytið en ÞSSÍ er í dag sjálfstæð stofnun.Ekki varð af þeirri breytingu vegna harðrar andst0ðu foirstjórans,Sighvats Björgvinssonar.-Stefán Þórarinsson er Framsóknarmaður.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
![]() |
Þróunarsamvinna í ólestri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 23. mars 2008
Páskadagur.Kristur er upprisinn
Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina. Þá varð landskjálfti mikill, því engill Drottins sté niður af himni, kom og velti steininum og settist á hann. Hann var sem elding ásýndum og klæðin hvít sem snjór. Varðmennirnir skulfu af hræðslu við hann og urðu sem örendir.
En engillinn mælti við konurnar: Þér skuluð eigi óttast. Ég veit, að þér leitið að Jesú hinum krossfesta. Hann er ekki hér. Hann er upp risinn, eins og hann sagði. Komið og sjáið staðinn, þar sem hann lá. Farið í skyndi og segið lærisveinum hans: Hann er upp risinn frá dauðum, sjá hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann. Þetta hef ég sagt yður.
Og þær fóru í skyndi frá gröfinni, með ótta og mikilli gleði, og hlupu að flytja lærisveinum hans boðin. Matt. 28
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 23. mars 2008
Aðgerðaráætlun í málefnum barna í framkvæmd
Félags- og tryggingamálaráðuneytið og samráðshópur ráðuneyta um framkvæmd aðgerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar í málefnum barna stóð fyrir fjölmennri ráðstefnu á Grand Hótel Reykjavík fyrir skömmu.. Tilgangurinn var að kynna ólíkar aðferðir til eflingar foreldrafærni. Aðalfyrirlesarar voru dr. Alan Ralph, prófessor við University of Queensland, Brisbane, Ástralíu, og Björn Arnesen félagsráðgjafi, frá Kompetansesenter for Atferd, Þrándheimi, Noregi.
Aðstoðarmaður félags- og tryggingamálaráðherra flutti ávarp ráðherra í forföllum hennar og sagði meðal annars:
Vandað uppeldi barnsins í frumbernsku og snemmtæk íhlutun með öflugum stuðningi við foreldra er líklegri til að skila varanlegri árangri en nokkuð annað. Þess vegna varðar mestu að efla færni foreldra til að skynja og skilja þarfir barnsins í bernskunni og til að bregðast við og eiga aðgang að viðeigandi aðstoð þegar með þarf.
Í þessu felst kjarninn í nýjum áherslum aðgerðaáætlunar í málefnum barna um stefnu til eflingar foreldrahæfni.
Það var samþykkt á sumarþinginu að gera aðgerðaráætlun í málefnum barna og siðan hefur verið unnið að henni. Ráðstefnan var liður i því starfi. Hér er um mjög mikilvægt mál að ræða og ber að fagna því að það skuli komið vel á veg.
Björgvin Guðmundsson
Sunnudagur, 23. mars 2008
Breskt blað: Ísland hindrar hrun efnahagslífsins
Breskt blað segir í dag, að íslensk stjórnvöld berjist nú á hæl og hnakka til að koma í veg fyrir hrun efnahagslífsins. Segir blaðið, að Ísland hafi orðið illa fyrir barðinu á lausafjárkreppunni og haft er eftir sérfræðingi að landið sé nú meðhöndlað eins og það sé eitraður vogunarsjóður.
Það er ekki sjaldgæft um þessar mundir,að erlend blöð skrifa á þennan hátt um Ísland., En hafa ber í huga,að þrátt fyrir allt er íslenskt efnahagslíf mj0g sterkt.Hagvöxtur hefur verið mikill þó gæðum lífsins hafi verið misskipt. Lífeyriissjóðirnir eru sterkir,bankarnir eru sterkir. Íslenska þjóðin mun vinna sig út úr þeim erfiðleikum ,sem nú steðja að.En ríkisstjórnin verður að gæta þess að gera nauðsynlegar hliðarráðsstafanir og standa við kosningaloforð sín við láglaunafólk og eldri borgara svo ekki verði uppreisn í landinu.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Eitraður vogunarsjóður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 23. mars 2008
"Pólitískt og efnahagslegt óveður framundan"
Það er pólitískt og efnahagslegt óveður framundan á Íslandi að öllu óbreyttu og ef mikil gengislækkun krónunnar gengur ekki til baka að einhverju leyti. Þannig byrjar Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins í dag.Blaðið leggur út af því,að gengishrun krónunnar muni hafa mikla kjaraskerðingu í för með sér.Kjarabæturnar,sem samið var um rjúki út i veður og vind og fólk sem sé með erlend lán á íbúðum sínum fari mjög illa út úr því.Hið sama sé að segja um þá,sem keypt hafi bíla á erlendum lánum.Mbl. segir,að sumir kaupmenn og framleiðendur muni velta erlendum hækkunum út í verðlagið en ekki verði unnt að gera það að öllu leyti og því muni koma til uppsagna starfsfólks. Gengishrunið geti því leitt til atvinnuleysis á næstu mánuðum.Búist er við að bankarnir muni segja upp 15% starsfólks síns. Mbl. telur,að verkalýðsfélögin geti ekki reiknað með að ríkið bæti verkalýðsfélögunum kjaraskerðinguna.Morgunblaðið er fremur svartsýnt í Reykjavíkurbréfi en segir,að það sé betra að vera svartsýnn en of bjartsýnn.
Björgvin Guðmundsson
Laugardagur, 22. mars 2008
ESB: Sjálfstæðisflokkurinn hreyfist
Guðmundur Magnússson bloggar m.a. á þessa leið:
Ég sat í svokallaðri Aldamótanefnd Sjálfstæðisflokksins 1988-1989. Nefndin, sem Davíð Oddsson stýrði, gerði það að tillögu sinni að sótt yrði um aðild að Evrópubandalaginu (eins og ESB hét þá) og látið reyna á það í viðræðum hvort ásættanlegur grundvöllur fengist fyrir aðild. Viðurkenna ber að þetta var að ýmsu leyti sérkennileg leið. Davíð og fleiri töldu að hún væri ekki lengur á borðinu eftir að EES-samningurinn var gerður 1992. Sá samningur var talinn fullnægja öllum þörfum Íslendinga í samskiptum við ESB og aðildarríki þess.
Í dag er mikill ágreininingur um það hvort EES samningurinn sé fullnægjandi eða ekki. Skoðanakannanir sýna að meirihluti þjóðarinnar er hlynntur því að ganga skrefi lengra með því að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin segir að aðild sé ekki á dagskrá á kjörtímabilinu". Þetta útilokar þó ekki að útbúinn sé hlutlaus vegvísir um það hvernig standa eigi að málum og kveða upp úr um hvaða leiðir eigi að fara. Mér finnst hugmynd Björns Bjarnasonar um þetta skynsamleg.
Mörgum mun þykja það mikil tíðindi,að Davíð Oddsson hafi viljað ganga í ESB 1988-89. Ég hafði heyrt þetta og það fylgdi sögunni,að hann hafi snúist gegn ESB eftir að hann talaði við LÍÚ.Hvað sem því líður er hugmynd Björn Bjarnasonar góð
Björgvin Guðmundsson
Laugardagur, 22. mars 2008
Á að sniðganga olympíuleikana í Kína?
Efnt var til mótmælaaðgerða við kínverska sendiráðið í Reykjavík í dag, og í fréttatilkynningu frá skipuleggjendum sagði að andmælt væri til að að þrýsta á
kínversk yfirvöld að
virða mannréttindi Tíbeta og hleypa alþjóðlegum mannréttindasamtökum
inn í landið og sýna Tíbetum stuðning í þeirra baráttu fyrir frelsi í
sínu eigin landi.
Ef Kínverjar virða ekki mannréttindi Tíbeta og opna landið á ný tel ég koma til greina að sniðganga olympíuleikana í Peking.Það gengur ekki að brosa til Kínverja eins og allt sé í lagi þegar þeir brjóta mannréttindi bæði í Tíbet og heima hjá sér.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Mótmæli við kínverska sendiráðið í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 22. mars 2008
ESB: Er Björn Bjarnason að snúast?
Össur Skarphéðinsson skrifar um Evrópuumræðuna á bloggsíðu sína. Þar segir hann m.a.:
Merkilegast finnst mér þó framlag Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra til umræðunnar. Innan Sjálfstæðisflokksins er Björn gjarnan sá sem fyrst hugsar upphátt þegar veðrabrigði eru í nánd um utanríkisstefnu. Rifja má upp að honum var á sínum tíma falin stefnumörkun af hálfu flokksins innan Evrópunefndarinnar. Í Mannamáli fyrir réttri viku hlustaði ég með mikilli athygli á hann stinga upp á því að áður en lengra yrði haldið í umræðunni um Evrópusambandið ættu menn að gera vegvísi um það hvað ætti að gera til að hægt væri að sækja um aðild að sambandinu! Björn lagði beinlínis til að menn kæmust að sameiginlegri niðurstöðu um hvernig ætti að breyta stjórnarskránni til að hægt væri að sækja um aðild. Sömuleiðis þyrfti í þeim pakka að ákveða hvort og hvernig - ætti að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um þá ákvörðun, að sækja um aðildina. Sjálfur veit hann frá því að við sátum nokkrir þingmenn í Evrópunefndinni að allar upplýsingar um kosti og galla aðildar liggja meira og minna fyrir í skýrslu þeirrar nefndar og þeir þættir þurfa ekki frekari rannsóknar við. Ásteytingssteinninn felst í því að það er erfitt fyrir marga að hugsa sér, að formlega myndi ákvörðun um heildarafla verða tekin í Brussel. En í því efni eru líka leiðir einsog þeir vita, sem sökkt hafa sér niður í Evrópuumræðuna. (Tók enginn eftir því snilldarbragði Barroso sem bað Geir forsætisráðherra á dögunum um liðsinni Íslendinga við að útfæra sjávarútvegsstefnuna?).Vitaskuld sló Björn sína varnagla. Hann taldi að ekki væri hægt að stilla mönnum upp gagnvart því að taka afstöðu fyrr en það væri á hreinu hvernig ætti að taka á til dæmis þessum þáttum breytingum á stjórnarskrá og hvort halda bæri þjóðaratkvæðagreiðslu á undan umsókn, og þá hvernig.
Ummæli Björns Bjarnasonar í Mannamáli benda til þess að Björn sé að snúast í afstöðunni til ESB.
Björgvin Guðmundsson
Laugardagur, 22. mars 2008
Kosningaloforðin hafa verið svikin
Það er alls óvíst,að núverandi ríkisstjórn sæti við völd,ef stjórnarflokkarnir hefðu ekki fengið mikið af atkvæðum frá öldruðum og öryrkjum vegna loforða flokkanna um miklar kjarabætur þeim til handa í formi hækkaðs lífeyris frá TR,ef þeir kæmust til valda.Samfylkingin lofaði að hækka í áföngum lífeyri eldri borgara upp í sem svaraði neysluútgjöldum samkvæmt könnun Hagstofu Íslands og að frítekjumark vegna lífeyrissjóðstekna og atvinnutekna yrði 100 þúsund kr. á mánuði. Sjálfstæðisflokkurinn lofaði einnig miklum kjarabótum fyrir aldraðra og öryrkja.Þessi kosningaloforð hafa verið svikin. Það er aðeins boðað að draga úr tekjutengingum sem aðeins kemur minnihluta eldri borgara til góða en ekkert er minnst á hækkun lífeyris frá almannatryggingum.Loforðið um frítekjumark fyrir lífeyrissjóðstekjur hefur gleymst.Þetta verður ekki liðið. Stjórnarflokkarnir verða að standa við kosningaloforð sín og það strax en ekki síðar.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 22. mars 2008
Losa þarf Tíbet undan oki Kína og veita því fullt sjálfstæði
Ísland hefur gerst aðili að yfirlýsingu Evrópusambandsins þar sem lýst er þungum áhyggjum yfir ástandinu í Tíbet og lýst yfir samúð með fjölskyldum fórnarlambanna.
Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, að í yfirlýsingunni sé þess krafist að allir aðilar sýni stillingu. Kínversk stjórnvöld eru hvött til að beita ekki valdi gegn þeim aðilum sem taka þátt í mótmælunum og mótmælendur sömuleiðis beðnir um að beita ekki ofbeldi.
Lögð er áhersla á mikilvægi tjáningarfrelsis og á réttinn til friðsamlegra mótmælaaðgerða, og kínversk stjórnvöld beðin um að bregðast við mótmælunum í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar meginreglur lýðræðisins. Lýst er yfir eindregnum stuðningi við að friðsamlegar sættir náist milli kínverskra stjórnvalda og Dalai Lama og fulltrúa hans. Kína er einnig hvatt til að taka á mannréttindamálum í Tíbet.
Í lokin eru báðir aðilar hvattir til þess að efna til umræðna með það fyrir augum að ná fram langtímalausn, sem væri ásættanleg fyrir alla og myndi jafnframt virða tíbetska menningu og trúarbrögð.
Þetta er ágætt innlegg frá ESB og utanríkisráðuneytinu. En það vantar stuðning við að Tíbet fái sjálfstæði. Það þarf sem fyrst að losa Tíbet undan kúgun Kína. Kínverjar náðu völdum í Kína með vopnavaldi.Ekkert er ásættanlegt annað en að Tíbet losni undan oki Kína og fái sjálfstæði.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Ísland lýsir áhyggjum af ástandinu í Tíbet |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |