Fimmtudagur, 15. maí 2008
Lífeyrir aldraðra lækkað á einu ári úr 100 % af lágmarkslaunum í 93,74%!
Jóhanna Sigurðardóttir,félags-og tryggingamálaráðherra,flutti erindi um málefni aldraðra á sambandsstjórnarfundi Landssambands eldri borgara (LEB) í fyrradag. Þar sagði Jóhanna m.a.:
Ég hef farið með lífeyrishluta almannatrygginga frá áramótum. Okkur hefur tekist að framkvæma fyrstu stóru áfangana sem kveðið er á um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Þegar þær aðgerðir verða allar komnar til framkvæmda á þessu ári munu greiðslur almannatrygginga til lífeyrisþega hækka um 9 milljarða króna á ársgrundvelli eða um rúm 17% ef miðað er við síðasta ár.
Það er vonandi,að þessi orð Jóhönnu rætist.En enn sem komið er hafa greiðslur til lífeyrisþega ekki aukist á því ári sem ríkisstjórnin hefur verið við völd. Á þessu ári hefur lífeyrir sem hlutfall af lágmarkslaunum lækkað úr 100% ( 2007) í 93,74% af lágmarkslaunum 2008. Þetta er ekki góður árangur. Þetta er afturför. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir aðeins að bæta eigi stöðu aldraðra og öryrkja. En í stefnu´ Samfylkingarinnar fyrir kosningar sagði,að hækka ætti lífeyri aldraðra þannig að hann dygði fyrir framfærslukostnaði lífeyrisþega samkvæmt neyslukönnun Hagstofu Íslands.Það er ekkert farið að gera í því efni,ekki hætis hót. Það þýðir ekkert að vera að reikna alltaf saman hvað eldri borgarar og öryrkjar græði mikið á því að fara út á vinnumarkaðinn.Það hafa ekki allir eldri borgarar heilsu til þess að fara út að vinna og það eiga ekki einu sinni allir eldri borgarar maka.Þeir,sem ekki eru á vinnumarkaði græða ekkert á minni bótaskerðingum vegna atvinnutekna og þeir,sem eiga ekki maka græða ekkert á afnámi skerðinga vegna tekna maka. Við viljum ráðstafanir,,sem gagnast öllum eldri borgurum en ekki ákveðnum hópum. Og við viljum fá strax þessar 9100 kr. sem hafðar voru af eldri borgurum í kjölfar kjarasamninga. Við viljum ekki fá þá leiðréttingu einhvern tímann seinna. Við viljum fá hana strax.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 15. maí 2008
Þorgerður Katrín vill þjóðaratkvæði um ESB
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra lýsti yfir áhyggjum sínum af ástandinu í borgarstjórninni, á fundi sjálfstæðismanna í Hlíðarsmára í Kópavogi í kvöld. Þá sagði Þorgerður að hún treysti fólki að kjósa um það á næsta kjörtímabili um hvort Ísland eigi að vera utan eða innan Evrópusambandsins.
Þorgerður talaði um að á lokaspretti þingsins væri stefnt að því að koma ákveðnum málefnum í gegn, t.d. reyna að klára nýja rammalöggjöf er varðaði leik-, grunn- og framhaldsskólana. Stefnt væri að því að minnka brottfall í framhaldsskólum og fjölga í iðn- og starfsnámi.
Þá væri ógnvænlegt að horfast í augu við aukningu verðbólgu en stefnt væri að því að ná henni hratt niður. Einnig kom Þorgerður inn á Evrópusambandið og inngöngu í það. Sagði hún að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að vera í forustu í Evrópuumræðu og stuðla að upplýstri umræðu um málið. Flokkurinn ætlaði að fara í fundaherferð þar sem Evrópumálin verði rædd.
Hún sagði nauðsynlegt i að tala um gallana jafnt sem kostina, það dyldist t.d. engum að aðild gæti fylgt aukið atvinnuleysi og vaxandi verðbólga. Áður en hægt væri að ræða aðild þyrftum við að vinna heimavinnuna okkar og gera úttekt á peningamálastefnu landsins.
Þá þyrfti að gera breytingar fljótlega á stjórnarskránni, m.a. með tillit til þjóðaratkvæðagreiðslna.
Þetta var athygliverð ræða hjá varaformanni Sjálfstæðisflokksins. Ljóst er,að fylgi við þjóðaratkvæðagreiðslu um afstöðuna til ESB eykst.Forustumenn í Framsóknarflokknum hafa látið sömu skoðun í ljós. Ólíklegt er að Þorgerður Katrín setji fram hugmynd um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB án samráðs við formann sinn.Sennilega er stefna Sjálfstæðisflokksins því að breytast og því aðeins spurning um það hvenær forustumenn í íslenskum stjórnmálum láta til skarar skríða i Evrópumálunum.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Hefur áhyggjur af borgarmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 14. maí 2008
Jónína Ben.hitti ekki Davíð
Hannes Hólmsteinn Gissurarson frændi minn, tjáir mér,að Jónína Benediktsdóttir hafi aldrei hitt Davíð Oddsson út af Baugsmálinu.Mér er ljúft og skylt að leiðrétta þetta.Það breytir ekki því,að það er almennt álit að einhverjir valdamiklir menn hafi ítt undir rannsókn á Baugi og þess vegna hafi verið gerð þar lögreglurannsókn í miklum flýti.
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 14. maí 2008
Afnema verður eftirlaunasérréttindin
Valgerður Bjarnadóttir,varaþingmaður Samfylkingarinnar,var í kastljósi RUV í gærkveldi og ræddi eftilaunamálið. Hún flutti frumvarp ásamt fleiri þingmönnum um að efnema sérréttindi ráðherra,þingmann,dómara o.fl. til eftirlauna.Frumvarp hennar var saltað í nefnd og er það dæmigert,að jafnvel frumvörp frá stjórnarþingmönnum fá ekki eðlilega þingmeðferð.Stjórnin stjórnar þinginu en ekki öfugt eins og þingræðið gerir ráð fyrir.Það kom fram hjá Valgerði,að hún telur breytingar Þær,sem Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún hyggjast gera á eftirlaunamálinu hvergi nærri fullnægjandi.Það þarf að afnema öll sérréttindi ráðherra,þingmanna og dómara til eftirlauna. Þessir hópar eiga að sitja við sama borð og aðrir landsmenn varðandi eftirlaun.
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 14. maí 2008
Mótmæli við alþingishúsið á morgun
Búið er að senda 35 þúsund smáskilaboð til fólks í landinu þar sem fólk er hvatt til þess að mæta á Austurvöll klukkan 10:30 í fyrramálið til að mótmæla því að ekkert sé gert til þess að bæta kjör fólks í landinu, samkvæmt upplýsingum frá baráttufólki um betri kjör á Íslandi.
Það eru atvinnubílstjórar,sem standa fyrir þessum mótmælum. Þeir reyna nú að fá almenning í lið með sér til þess að mótmæla.Þeir eru óánægðir með að hafa ekki fengið nein svör við erindi sem þeir sendu fjármálaráðuneytinu fyrir 3 árum. En þá mótmæltu þeir þungaskatti og háu eldsneytisverði.
Björgvin Gu'mundsson
![]() |
Boða fólk á Austurvöll til að mótmæla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 14. maí 2008
Ólafur F. og íhaldið trausti rúið í Rvk.
Mikið er nú rætt um skoðanakönnum Gallups um fylgi flokkanna í Rvk. Samkvæmt henni er meirihluti Ólafs F. og íhaldsins trausti rúiinn í Rvk. og mundi kolfalla ef kosið væri nú. Ólafur F. borgarstjóri næði ekki kosningu ef kosið væri í dag og Sjálfstæðisflokkurinn mundi missa 2 borgarfulltrúa. Samfylkingin mundi hins vegar fá 7 fulltrúa og vera nálægt því að fá hreinan meirihluta. Meirihluti íhalds og Ólafs F. ætti að sjá sóma sinn í því að segja af sér. Þeir náðu meirihlutanum með bellibrögðum og Reykvíkingar kunna ekki að meta slík vinnubrögð. Íhaldið gekk á eftir Ólafi F. og bauð honum borgarstjórastólinn,ef hann vildi svíkja samstarfsmenn sína í borgarstjórn og koma yfir til Sjálfstæðisflokksins.Þetta gerði Ólafur og laug því að Degi B.Eggertssyni og meirihluta hans,að hann væri ekkert að mynda meirihluta með íhaldinu.Ólafur neitaði þessu allan daginn,sem nýi meirihlutinn var myndaður og allt fram á kvöld. Síðan kemur Ólafur fram fyrir alþjóð nú fyrir stuttu og segist vera heiðarlegur stjórnmálamaður!. Reykvíkingar hafa kveðið upp sinn dóm hjá Gallup. Þeir vilja ekki svona vinnubrögð.
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 14. maí 2008
Baugsmálið komið fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur tók Baugsmálið svonefnda fyrir í morgun og verður málflutningur í dag og á morgun. Um er að ræða mál ákæruvaldsins gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stjórnarformanni Baugs, Tryggva Jónssyni, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs og Jóni Geraldi Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélaga Baugsmanna.
Hæstaréttardómarnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Hjördís Hákonardóttir, Markús Sigurbjörnsson og Páll Hreinsson dæma málið.
Í Héraðsdómi Reykjavíkur var Tryggvi dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi og þeir Jón Ásgeir og Jón Gerald í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Héraðsdómur vísaði upphaflega flestum ákæruatriðum málsins frá en Hæstiréttur ómerkti dóminn og gerði héraðsdómi að kveða upp efnisdóm.
Ákæra í málinu var í upphafi í alls nítján liðum en 1. ákæruliðnum, sem snerist um viðskipti með móðurfélag 10-11 verslananna á árunum 1998 og 1999, var vísað frá héraðsdómi sumarið 2006. Hæstiréttur staðfesti síðar þá frávísun.
Héraðsdómur vísaði síðan 10 ákæruliðum til viðbótar frá í maí á síðasta ári en dæmdi Tryggva í 9 mánaða skilorðsbundið fangelsi, aðallega fyrir að láta útbúa tilhæfulausar kreditnótur og rangfæra þannig bókhald Baugs. Jón Ásgeir var einnig fundinn sekur um að hafa látið Jón Gerald útbúa tilhæfulausan kreditreikning fyrir upphæð að fjárhæð nærri 62 milljónir króna. Jón Gerald var sýknaður.
Hæstiréttur felldi frávísun héraðsdóms að mestu úr gildi og sá angi málsins sem sneri að þeim var endurfluttur í júní. Í þeim hluta var Jón Ásgeir sýknaður en skilorðsbundin refsing Tryggva þyngd um þrjá mánuði. Þá var Jón Gerald dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar refsingar.
Í greinargerð ákæruvaldsins sem send hefur verið til Hæstaréttar er lögð áhersla á að brotin hafi verið framin af tveimur æðstu stjórnendum almenningshlutafélags sem skráð hafi verið á almennum markaði.
Tryggvi og Jón Ásgeir hafi notað þekkingu sína á sviði bókhalds og endurskoðunar til að leyna brotlegri starfsemi sinni.
Ákæruvaldið telur brotin hafa beinst gegn mikilvægum opinberum hagsmunum, kaupendum og seljendum hlutafjár í félaginu, viðskiptamönnum, lánardrottnum og trúverðugleika verðbréfamarkaðar hér á landi í heild.
Hér er um að ræða eitthvað umfangsmesta dómsmál seinni tíma. Það er búið að vísa flestum uoohaflegu sakarefnunum frá en ákæruvaldið hefur alltaf haldið áfram með málið og reynt að grafa upp fleiri og fleiri mál.Margir telja,að hér hafi verið um ofsóknir á hendur Baugi að ræða og ætlunin hafi verið að koma fyrirtækinu á kné. Forráðamenn Baugs telja,að Davíð Oddsson hafi staðið á bak við lögreglurannsóknina gegn fyrirtækinu og þess vegna hafi hún hlotið flýtimeðferð.Jónína Benediktsdóttir,fyrrum sambýliskona Jóhannesar í Bonus, skýrði frá því í tímaritsviðtali,að hún hefði farið fund Davíðs Oddssonar og sagt við hann,að þeir Bonusfeðgar væru að " svindla" ´í Bandaríkjunum. Hún mun hafa hvatt Sullenberger til þess að kæra Bonusfeðga.Hvað rétt er í þessu er erfitt að átta sig á.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Baugsmálið fyrir Hæstarétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 14. maí 2008
Clinton heldur áfram
Hillary Clinton gaf í skyn í gær, eftir stórsigur í forkosningum í Vestur-Virginíu, að hún myndi halda áfram baráttu sinni fyrir útnefningu sem forsetaefni Demókrataflokksins, þrátt fyrir að keppinautur hennar, Barack Obama, hafi tekið afgerandi forskot og sé talinn öruggur um útnefninguna.
Þið haldið ótrauð áfram, og það mun ég einnig gera, sagði Clinton á fundi með stuðningsmönnum sínum í Vestur-Virginíu í gær, þegar útgönguspár lágu fyrir og ljóst að hún hafði sigrað með yfirburðum.
Ég er nú staðráðnari í því en nokkru sinni að halda baráttunni áfram uns allir hafa fengið tækifæri til að láta í sér heyra, sagði hún ennfremur.
Það er ekki nóg með að Obama hafi tryggt sér stuðning mun fleiri fulltrúa á komandi landsfundi, sem útnefnir forsetaefni flokksins, heldur er fjárhagsstaða hans mun betri en Clintons. Kosningasjóður hennar er stórskuldugur, og nema heildarskuldir hennar vegna kosningabaráttunnar um tuttugu milljónum dollara.
Clinton fékk 67% atkvæða í forkosningunum í gær, Barack Obama 26% og John Edwards fékk 7% þótt hann hafi dregið sig í hlé fyrr á þessu ári. Clinton fékk 20 af 28 kjörmönnum, sem kosið var um, en Obama 8. Þá eru 11 svonefndir ofurkjörmenn í ríkinu en ekki er vitað hvaða frambjóðanda þeir styðja.
-Þetta var góður sigur hjá Hillary Clinton í V.-Virginiu en hvort hann dugar til sigurs er óvíst.Sagt er,að meirihluti ofurfulltrúanna á landsfundi demokrata ætli að kjósa Obama. Verkefni Clintons nú er að fá þá á hennar band.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Clinton ekki af baki dottin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 13. maí 2008
Samfylkingin að ná hreinum meirihluta í Rvk
Litlu munar að Samfylkingin fái hreinan meirihluta í Reykjavík, samkvæmt nýrri skoðanakönnun, sem Capacent Gallup hefur gert og sagt var frá í fréttum Útvarps. Fylgi Sjáflstæðisflokksins í borginni hefur hins vegar minnkað mikið á síðustu mánuðum. Hvorki Frjálslyndir og óháðir né Framsóknarflokkur kæmu að manni ef kosið væri nú.
Samkvæmt könnuninni, sem gerð var fyrri frá 1. mars til 16. apríl fengi Samfylkingin 47,1% og sjö borgarfulltrúa, bætti við sig þremur ef kosið væri nú. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 30,1% fylgi og 5 fulltrúa, tapaði tveimur. Þá fengi Vinstrihreyfingin-grænt framboð 18,9% og þrjá fulltrúa, bætti við sig einum. Framsóknarflokks fengi 2,1% og Frjálslyndir og óháðir 1,8%.
Ljóst er samkvæmt þessari kðnnun,að Reykvíkingar hafa fengið nóg af stjórnleysi og valdabrölti Sjálfstæðisflokksins og Ólafs F. Magnússsonar í Rvk.Ólafur kæmist ekki að ef kosið væri nú.Sjálfstæðisflokkurinn tapaði 2 fulltrúum en Samfylkingin fengi 7 og er alveg að ná meirihluta.Þetta er góð útkoma fyrir Samfylkinguna,
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar mikið í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 13. maí 2008
Einkaneysla dregst saman um 10% á 2 árum
Miðað við þær vísbendingar sem nú liggja fyrir bendir allt til þess að einkaneysla hafi vaxið á 1 ársfjórðungi 2008. En skjótt skipast veður í lofti og framundan er tveggja ára samdráttur í einkaneyslu sem mun nema allt að 10%.
Þetta kemur fram í hálffimm fréttum Kaupþings. Þar segir ennfremur að gert sé ráð fyrir því að einkaneysla dragist saman um 2,8% í ár og um 7,5% á því næsta - sem verður þá mesti samdráttur í einkaneyslu frá árinu 1975.
Á árinu 2010 er gert ráð fyrir að umsvif í hagkerfinu taki við sér á ný og að vöxtur einkaneyslu muni mælast í kringum 4%," segir í hálffimm fréttum Kaupþings.
Miðað við 30% gengislækkun krónunnar og 15,5% stýrivexti Seðlabankans þarf það ekki að koma á óvart að einkaneysla dragist saman.Það er hins vegar undrunarefni,að neyslan dragist ekki saman strax á 1. ársfjórðungi 2008.
Björgvin Guðmundsson