Gróf mannréttindabrot framin á Íslandi!

 

Utanríkisráðherra,Guðlaugur Þór Þórðarson,lagði fyrir alþingi skýrslu um utanríkismál fyrir nokkrum dögum.Þar er m.a.kafli um mannréttindamál.Þegar utanríkisráðherra ræddi skýrsluna á alþingi kvaðst hann leggja mikla áherslu á mannréttindamál.M.a. kvaðst hann hafa áhyggjur af mannréttindabrotum í Rússlandi.Kvaðst hann hafa rætt þau mál við utanríkisráðherra Rússlands og m.a. fundið að því, að mannréttindi væru brotin á samkynhneigðum í Rússlandi.Það er virðingarvert,að utanríkisráðherra skuli láta sig varða mannréttindabrot í Rússlandi en það væri ekki síður æskilegt,að hann léti sig skipta mannréttindabrot á Íslandi.Hér á landi eru gróf mannréttindabrot framin.Dæmi: Lífeyrir aldraðra, sem einungis hafa lífeyri frá almannatryggingum, er haldið niðri í tæpum og rúmum 200 þúsund kr á mánuði.Það dugar ekki fyrir framfærslukostnaði og er gróft mannréttindabrot.Þúsundir barna á Íslandi búa við fátækt.Það er gróft mannréttindabrot. Og þannig mætti áfram telja.Æskilegt væri að utanríkisráðherra og aðrir ráðherrar létu sig þessi mál skipta og beittu sér fyrir lagfæringunm svo hætta mætti mannréttindabrotum hér á landi

Björgvin Guðmundsson


Stjórnarlaun í Granda 264 þúsund á mánuði,lífeyrir aldraðra 197 þúsund!

Stjórnarlaun í Granda hafa verið ákveðin 264 þúsund kr á mánuði og formaður fær tvöföld laun.En á sama tíma og stjórnarmenn Granda fá þessi laun fyrir að sitja ca 2 fundi á mánuði eru mánaðarlaun (lífeyrir) aldraðra,sem eru í hjónabandi eða sambúð 197 þúsund kr á mánuði eða miklu lægri ( miðað við þá sem einungis hafa tekjur frá TR).Hér sést í hnotskurn misréttið í íslensku þjóðfélagi.Lífeyri aldraðra og öryrkja er haldið niðri,við fátæktarmörk.En útgerðaraðallinn rakar til sín peningum og greiðir þjóðinni,sem á sjávarauðlindina  "skít úr hnefa" fyrir afnot hennar.Stjórnmálastéttin hefur algerlega brugðist í því að ákveða eðlilegt afgjald fyrir afnot auðlindarinnar.Hún hefur ekki ráðið við verkefnið.Grandi greiðir hluthöfum 1,8 milljarða í arð vegna ársins 2016.En þó afkoman sé góð,m.a vegna lágra veiðigjalda,þykist félagið ekki geta rekið vinnslu áfram á Akranesi og vill flytja hana við Reykjavíkur. Við það missa 100 manns vinnuna á Akranesi.Grandi er búinn að hirða kvótann á Akranesi og fara með hann á brott.Og nú þykir Granda tímabært að þakka fyrir sig á  Akranesi með því að segja þar upp 100 manns.

 Björgvin Guðmundsson


Stefnt að einkavæðingu í mörgum greinum!

Sjálfstæðisflokkurinn ræður öllu í ríkisstjórninni. Samstarfsflokkarnir í ríkisstjórninni veita flokknum ekkert aðhald.Sjálfstæðisflokkurinn stefnir nú leynt og ljóst að því að einkavæða sem víðast. Heilbrigðiskerfið er fyrsta fórnarlambið í því efni.Þar eru miklir erfiðleikar vegna fjárskorts og kerfið er viðkvæmt.Það liggur því vel við höggi.Sjálfstæðisflokkurinn stefnir að einkavæðingu í þessari grein enda þótt skoðanakannanir hafi leitt í ljós,að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar ( yfir 80%) vilji að heilbrigðiskerfið sé rekið af hinu opinbera.Næsta fórnarlambið er skólakerfið. Upplýst var af RUV í gærmorgun og rætt á alþingi,að menntamálaráðherra væri að vinna að einkavæðingu Fjölbrautarskólans í Ármúla; meiningin væri að sameina Fjölbrautarskólann Tækniskóla Íslands sem atvinnulífið á.Ráðherrann hefur algerlega sniðgengið alþingi i þessu máli enda þótt um stefnubreytingu sé að ræða.Það á að fara framhjá þinginu.Víðar eru uppi einkavæðingaráform. Skammt er síðan Jón Gunnarsson samgönguráðherra Sjálfstæðisflokksins  barðist fyrir veggjöldum og einkavæðingu í vegakerfinu.Samt innheimtir ríkið háa skatta af bensínu sem upphaflega áttu að fara í vegina en hafa undanfarið farið í ríkishítina.Það er aðeins ein leið til þess að stöðva einkavæðingaráform stjórnarnnar: Almenningur verður að ´rísa upp og stöðva einkavæðingaráformin.Almenningur reis upp og mótmælti þegar upp komst um það,að ráðherrar,þar á meðal forsætisráðherra,voru með fjármuni í skattaskjólum. Þau mótmæli felldu ríkisstjórnina.Almenningur hefur valdið.

Björgvin Guðmundsson


Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg!

 

 

 

 

Hver er staða aldraðra og öryrkja í dag? Hefur hún batnað? Er hún ásættanleg?Með stöðu aldraðra og öryrkja er ekki aðeins átt við  það, hvort lífeyrir aldraðra og öryrkja sé viðunandi, heldur einnig stöðu hjúkrunarmála  lífeyrisfólks; framboð rýmis á hjúkrunarheimilum og heimahjúkrun.

 

Lífeyrir óviðunandi

 

Í dag  opnar  varla ráðamaður á Íslandi munninn  án þess að hann tali um það  hvað þjóðin hafi það gott,hagvöxtur sé í hámarki  og staða ríkisfjármála ágæt.Í samræmi við það ætti lífeyrir aldraðra og öryrkja að vera ásættanlegur? En er það svo? Nei, það er langur vegur þar frá.Ný lög um almannatryggingar tóku gildi um siðustu áramót; þau höfðu verið í undirbúningi í meira en áratug.Samkvæmt  því hefði átt að vera mikið kjöt á beinunum.En svo var ekki.Lögin voru rýr í roðinu.Í fyrstu var ekki boðin ein króna í hækkun til þeirra aldraðra og öryrkja,sem aðeins höfðu lífeyri frá almannatryggingum.Það var ekki fyrr en Félag  eldri borgara í Reykjavík hafði haldið 1000 manna mótmælafund  í Háskólabíó, að þáverandi ríkisstjórn lét undan og samþykkti hungurlús í hækkun til  þeirra,sem voru á „stripuðum“ lífeyri.Þegar hungurlúsin hafði náð fram að ganga var lífeyrir aldraðra  í hjónabandi og i sambúð kominn í 197 þúsund á mánuði, eftir skatt.Lífeyrir einhleypra aldraðra hafði þá hækkað  í 230 þúsund á mánuði eftir skatt.Það mundu víst margir aðrir geta lifað af þessum upphæðum í dag? Þetta er skammarlega lágt og enginn leið að framfleyta sér af þessum lífeyri.Þetta er óásættanlegt, þegar nógir peningar eru til í þjóðfélaginu.

 

305 þúsund á mánuði  eftir skatt er lágmark

 

Hvað þarf lífeyrir að vera hár til þess að hann dugi fyrir sómasamlegri framfærslu? Svarið er þetta: 400 þúsund á mánuði fyrir skatt fyrir einhleypa eldri borgara.Það þýðir 305 þúsund kr á mánuði eftir skatt.Mér finnst þetta lágt,þegar haft er í huga að meðaltekjur einstaklinga voru 620 þúsund kr á mánuði fyrir skatt 2015.

Lífeyrir aldraðra og öryrkja er óásættanlegur,þ.e. þeirra sem hafa „strípaðan“ lífeyri.Það er ekki unnt að lifa af honum. En hvað með aðra þætti,sem varða lífeyrisfólk? Hjúkrunarheimili.Þar er staðan einnig óásættanleg: Biðlisti eftir rými er 6-8 mánuðir. Og heimilin eru svo fjársvelt,að þau geta ekki ráðið nægilega margt fagmenntað fólk eins og hjúkrunarfræðinga.Þetta ástand er til skammar hjá „velferðarríki“. Talað er mikið um að stuðla eigi að því að eldri  borgarar eigi að geta verið sem lengst heima.En ekkert er gert til að stuðla að því.Heimahjúkrun er einnig fjársvelt.

Samandregið: Það ríkir vandræðaástand í málefnum aldraðra og öryrkja á öllum sviðum.

 

Björgvin Guðmundsson

Fréttablaðið 4.mai 2017

 

 


Greinilega stefnt að einkavæðingu heilbrigðiskerfisins!

Margir undrast það hvers vegna Landspítalinn er sveltur fjárhagslega þannig, að það vantar 5-10 milljarða í rekstur spítalans.Ráðamenn ríkisstjórnarinnar segja, að ekki verði látnir neinir frekari nýir peningar í Landspítalann á þessu ári.Samkvæmt því verður að skera stórlega niður þjónustu á Landspítalanu, og var þó þegar búið að spara mikið í rekstrinum.
Það er greinilegt,að Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að keyra Landspítalann niður þannig,að hann verði að stöðvun kominn og þegar algert öngþveiti hefur skapast ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að stíga fram og segja,að einkareksturinn verði að koma til aðstoðar.M. ö.o: Þetta er hrein skemmdarstarfsemi gagnvart Landspítalanum og heilbrigðiskerfinu.Þjóðin verður að taka í taumana og stöðva þessa atlögu að Landspítalanum.Það er mikil hætta á ferðum.
Æ fleiri vísbendingar sjást um, að stefnt sé að einkavæðingu kerfisins .Nú síðast stígur forsætisráðherrann fram og segir,að það sé í lagi að greiða eigendum einkarekinna heilsugæslustöðva arð,ef hagnaður er að rekstrinum.Þó var búið að afgreiða þetta mál á annan hátt: Kristján Þór Júlíusson þá heilbrigðisráðherra lýsti því yfir á blaðamannafundi í fyrra, að ekki mætti greiða eigendum einkarekinna heilsugæslustöðva arð.Klínikin er lítið einkasjúkrahús og ríkisstjórnin lætur gott heita,að það starfi án leyfis..Katrín Jakobsdóttir alþingismaður spurði á alþingi hvort stefnubreyting hefði orðið frá því í fyrra og hvort þetta væri stefna ríkisstjórnarinnar.Forsætisráðherra hundsaði fyrirspurnina.Það er alvanalegt,að ráðherrar hundsi fyrirspurnir þingmanna og þannig sýna þeir alþingi lítilsvirðingu.Það er alvarlegt,.þegar forsætisráðherra hundsar alþingi..

Björgvin Guðmundsson

 
 
 
 

Lífeyrissjóðirnir:Stöðva verður "eignaupptökuna" strax!

Það verður að stöðva þegar í stað þessa "eignaupptöku".Ríkisvaldið verður strax að stöðva það,að Tryggingastofnun skerði lífeyri þeirra eldri borgara,sem fá lífeyri úr lífeyrissjóði.Sú ráðstöfun er ígildi  eignaupptöku.Verði þetta ekki stöðvað getur orðið uppreisn gegn lífeyrissjóðskerfinu.Það er svo mikil óánægja í dag með þessar skerðingar,að það er rétt með naumindum,að launþegar fást til þess að greiða iðgjöldin í lífeyrissjóðina.Launþegum finnst eins og það sé verið að blekkja þá; það sé verið að plata þá.Inn í þetta blandast óánægja með stjórnarfyrirkomulag lífeyrissjóðina en sjóðfélagar,launþegar,kjósa ekki stjórnarmenn í lífeyrissjóðunum beinni kosningu heldur eru það ASI og SA sem tilnefna eða kjósa stjórnarmenn. Það er fráleitt fyrirkomulag og því verður að breyta.- Það er gífurleg óánægja meðal sjóðfélaga í lífeyrissjóðunum og ef ekki verður brugðist við getur illa farið.-Kjarnapunktur í þessu máli er,að þegar lífeyrissjóðirnr voru stofnaðir var yfirlýst,að þeir ættu að vera viðbót við almannatryggingar.Þeir áttu ekki að valda neinni skerðingu.

Björgvin Guðmundsson


"Landspítalinn undirmannaður og undirfjármagnaður"

Landspítalinn er undirmannaður og undirfjármagnaður.Forsætisráherra segir hins vegar,að  ekki verði látnir meiri nýir peningar í Landspítalann í ár.Hvað þýðir það? Jú,það þýðir það,að fara verður í stórfelldan niðurskurð í rekstri Landspítalans. Það þarf að skera  niður um 5- 10 milljarða í rekstrinum.Það verður því að skera niður þjónustu og jafnvel vísa frá sjúklingum sem leita til spitalans.

Landlæknir var í viðtali á Hringbraut og þá kom mat hans á stöðu Landspítalans fram.Hann endurtók það,sem hann hefur sagt áður um Klinikina við Ármúla en landlæknir hefur bent á,að vegna samnings sérfræðilækna við Sjúkratryggingar sé unnt að reka Klinikina án leyfis ráðherra og engin takmörk séu á því hvað Sjúkratryggingar greiði háa reikninga fyrir Klinikina.Það er nokkurs konar sjálfsafgreiðsla.Landlæknir hefur bent á,að með þessu fyrirkomulagi sé engin leið að hafa stjórn á hve einkarekstur eða opinber rekstur sé mikill í heilbrigðiskerfinu.Táknrænt er,að útgjöld Sjúkratrygginga hafa aukist um 40% á sama tima og útgjöld Landspítalans hafa dregist saman.

Björgvin Guðmundsson


Stjórnvöld láta sér ekki nægja að hindra kjarabætur aldraðra og öryrkja heldur no ta hvert tækiflri til þess að skerða kjör þeirra

Stjórnvöld standa gegn öllum raunverulegum kjarabótum aldraðra og öryrkja.En þau láta sér það ekki nægja heldur nota hvert tækifæri til þess að skerða kjör þeirra.Eitt nýjasta dæmið er þetta:Sumir öryrkjar og aldraðir hafa fengið húsnæðisbætur.Þær eru tekjutengdar;þ.e. það fer eftir tekjum viðkomandi hvort hann fær þessar bætur.Við útreikning á húsnæðisbótunum og viðmiðunartekjunum hefur lífeyrir öryrkja og aldraðra frá almannatryggingum ekki verið reiknaður með tekjum. En um síðustu áramótum varð breyting þar á.Frá þeim tíma eru allar tekjur öryrkja og aldraðra frá almannatryggingum reiknaðar sem tekjur við útreikning húsnæðisbóta. Þetta þýðir mikla kjaraskerðingu öryrkja og aldraðra og var nú ekki á bætandi.Hvað rak ríkisstjórn til þess að skerða húsnæðisbætur aldraðra og öryrkja? Var það góðærið!

Björgvin Guðmundsson


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband