Föstudagur, 12. september 2008
1000 börn bíða eftir að komast á frístundaheimili
Nú bíða þúsund börn eftir að komast að á frístundaheimilum borgarinnar. Samstaða er í borgarráði um tillögu borgarstjóra um að leysa starfsmannavanda heimilanna. Það verður gert með því að samþætta störf sviðanna og kannað möguleika á fjölbreyttari rekstri á frístundaheimilum.
Börnum sem bíða þess að fá pláss á frístundaheimilum borgarinnar hefur fækkað um 400 í liðinni viku. Meginástæða þessa er að tekist hefur að ráða fleira starfsfólk á heimilin.(ruv.is)
Ástæðan fyrir þessu vandræðaástandi á frístundaheimilum borgarinnar er sú,að launin eru svo lág að fólk fæst ekki til starfa. Það þarf að hækka launin á öllum umönnunarstöðvum borgarinnar og ekki síst á hjúkrunarheimilum.
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 12. september 2008
Fjármálaráðherra stefnir ljósmæðrum!
Mikil reiði kom fram á félagsfundi ljósmæðra í gærkvöldi, yfir því að Árni Mathiesen fjármálaráðherra skuli hafa stefnt Ljósmæðrafélaginu fyrir ólöglegar uppsagnir í sumar og krefjist þess að þær verði dæmdar ólögmætar.
Uppsagnirnar fara að koma til framkvæmdar. Það blæs því ekki byrlega fyrir næsta samningafund deilenda, sem boðað hefur verið til í dag. Mikið annríki er á fæðingadeild Landsspítalans og þurfa sængurkonur að hafast við í rúmum frammi á gangi, en aðrar eru sendar heim nokkrum klukkustundum eftir fæðingu. (ruv.is)
Þetta er mjög óklókt hjá fjármálaráðherra að stefna ljósmæðrum fyrir uppsagnir. Hópuppsagnir fyrir atbeina stéttarfélags eru ólögmætar en hver og ein ljósmóðir getur sagt upp og ríkið neyðir ekki ljósmæður til að vinna.Það er ekki unnt að sanna,að um ólögmætar hópuppsagnir sé að ræða. Það eru ekki hópuppsagnir þó margar ljósmæður segi upp á svipuðum tíma.Ef fjármálaráðherra heldur að hann geti brotið ljósmæður á bak aftur með svona aðgerðum þá er það misskilningur. Þetta mun herða ljósmæður og getur leitt til margra mánaða verkfalls. Ef kjör ljósmæðra verða ekki leiðrétt uljósmæður hætta störfum og þá blasir við neyðarástand.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 11. september 2008
Þing danskra jafnaðarmanna nú og 1954
Anna Pála Sverrisdóttir formaður UJ var meðal gesta á þingi danskra sósíaldemókrata í Álaborg síðustu helgi og naut mikillar stemmningar á þinginu, sem hafði einkunnarorðinVi kan, hvis du vil: Við getum það ef þið viljið. Í pistli sem Anna Pála skrifar frá þinginu fyrir S-vefinn ( vef Samfylkingarinnar) segir hún að danskir jafnaðarmenn séu í góðu formi og segir þá ánægða með formann sinn, Helle Thorning-Schmidt, sem Samfylkingarmenn þekkja ágætlega frá heimsókn hennar á landsfundinn hér í fyrravor. (S-vefur)
Þegar ég las þessa frásögn rifjaðist upp fyrir mér,að ég fór á flokksþing danskra jafnaðarmanna í Roskilde 1954.Hannibal Valdimarsson var þá formaður Alþýðuflokksins og sendi mig á þingið. Það var mjög skemmtilegt að vera fulltrúi íslenskra jafnaðarmanna á þinginu í Roskilde 1954.Það sem mér fannst skemmtilegast var hve mikið var sungið. Danskir jafnaðarmenn sungu baráttusöngva og það skapaði mikla stemmningu.Þarna voru H.C.Hansen,Viggo Kampmann,H.P Andersen og fleiri leiðtogar danskra jafnaðarmanna. Fluttar voru eldheitar barátturæður og öll helstu mál rædd. Þingið var mjög fróðlegt og ánægjulegt.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 11. september 2008
Geir: Horfur betri en við áttum von á
![]() |
Betri horfur en talið var |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 11. september 2008
Kynbundinn launamunur eykst.Aðgerða er þörf
Niðurstöður launakönnunar SFR - stéttafélags í almannaþágu, sýna að kynbundinn launamunur er viðvarandi og vaxandi vandamál hjá hinu opinbera. Munurinn hefur aukist um 3% á milli ára hjá SFR, en stendur í stað hjá félagsmönnum VR.
Þannig hafa meðalheildarlaun karla í fullu starfi sem eru félagar í SFR verið 376 þúsund í ár, en meðalheildarlaun kvenna 274 þúsund krónur. Konur fá því að meðaltali 27% lægri heildarlaun en karlar.
Í heildalaunum koma þó fram launaþættir sem skýra að hluta hærri heildarlaun karla, en þegar tekið hefur verið tillit til allra þátta, s.s. aldurs, vinnutíma, eftirvinnu o.s.frv. stendur eftir að óútskýrður launamunur kynjanna er 17,2%, sem er veruleg aukning frá síðasta ári þegar munurinn mældist 14,3%. (mbl.is)
Þetta er alvarlegt mál. Samkvæmt þessu eru lög brotin. Samkvæmt þeim á að vera launajafnrétti. En launamunurinn er um 100 þús kr. á mán.eða 27%. Ljóst er,að stjórnvöld verða að grípa til aðgerða ef lögin um launajafnrétti eiga ekki að vera dauður bókstafur.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Kynbundinn launamunur eykst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 11. september 2008
Kirkjan í Grafarholti vígð í desember
Undanfarið hefur staðið yfir bygging kirkju í Grafarholti.Nú sér fyrir endann á þeim framkvæmdum. Nýja kirkjan verður vígt 7.desember 2008.Hefur kirkjan hlotið nafnið Guðríðarkirkja. Kirkjan heitir eftir Guðríði Þorbjarnardóttir,sem fædd var nálægt 980 í Dölum.Hún var dóttir kristinna foreldra.Hún fór með Karlsefni til Vínlands um 1000 og ól þar soninn Snorra,fyrsta vestræna barnið í Ameriku.Fór eftir dauða Karlsefnis í pílagrímsgöngu,fótgangandi til Rómar.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 11. september 2008
Hagvöxtur 5% á öðrum ársfjórðungi,m.a. vegna álframleiðslu
Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 5% að raungildi á 2. fjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Á fyrstu sex mánuðum ársins er hagvöxtur talinn vera 4,1%. Í síðustu hagspá fjármálaráðuneytisins frá því í vor var spáð 0,5% hagvexti á árinu.
Þjóðarútgjöld drógust saman um 8% á öðrum ársfjórðungi, þar af einkaneysla um rösklega 3% og fjárfesting um tæp 26%. Samneysla óx hins vegar um tæp 4%. Þá er talið að útflutningur hafi vaxið um 25% en innflutningur hafi dregist saman um 12%.
Þessi þróun veldur því að verulega dró úr halla á vöru- og þjónustuviðskiptum samanborið við 2. ársfjórðung 2007 og skýrir þessi mikli bati vöxt landsframleiðslunnar á sama tíma og þjóðarútgjöld dragast saman.
Hagstofan segir, að þessi mikla aukning útflutnings og þar með landsframleiðslu á 1. og einkanlega á 2. ársfjórðungi eigi að stórum hluta rót sína að rekja til þess að álframleiðsla Fjarðaáls komi nú inn. Stækkun Norðuráls hafi einnig sitt að segja. Afar lauslega megi áætla að þessi framleiðsluaukning auki hagvöxt á 2. fjórðungi um rösk 2% og um ½ til 1% á 1. fjórðungi.( mbl.is)
Þessar hagvaxtartölur yfirstandandi árs benda ekki til neinnar kreppu.Á fyrstu 6 mánuðum ársins er hagvöxtur 4,1%.Samkvæmt þessum tölum ætti að vera unnt að bæta kjör þegnanna á grundvelli hagvaxtar.En við erum að rýra kjör launþega og það mikið.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Hagvöxtur 5% á öðrum ársfjórðungi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 11. september 2008
Hagvöxtur 4,9% í fyrra
Samkvæmt endurskoðuðum tölum Hagstofunnar var landsframleiðslan á árinu 2007 1293 milljarðar króna og jókst að raungildi um 4,9% frá fyrra ári. Þjóðartekjur jukust hins vegar mun meira eða um 7,8% samanborið við 1,6% vöxt árið áður.
Þessi vöxtur kemur í kjölfar 4,4% vaxtar á árinu 2006. Hann er einnig mun meiri en áætlun Hagstofunnar í mars gerði ráð fyrir en þá var talið að hagvöxtur á árinu 2007 hefði orðið 3,8%. Breytingin skýrist einkum af meiri fjárfestingu og samneyslu en reiknað var með í mars auk endurskoðunar á mati á birgðum í stóriðju.(mbl.is)
Þetta eru ánægjulegar fréttir. En spurningin er sú hvort launafólk hefur fengið réttláta hlutdeild í hagvextinum eða hvort milliliðir og atvinnurekendur hafa tekið of mikið til sín.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Hagvöxtur síðasta árs meiri en áður var talið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 11. september 2008
Afnám tekjutengingar kostar ríkið ekki neitt
Rannsóknarsetur verslunarinnar á Bifröst gerði könnun á því hvað það mundi kosta ríkið að afnema tekjutengingu vegna tryggingabóta aldraðra.Í áliti um málið sagði Rannsóknarsetrið m .a.
Ef reiknað er með að tæplega 4 þúsund
manns á aldrinum 65 ára til 71 árs fari út á vinnumarkaðinn og vinni sér inn sem
nemur meðallaunum fólks á þessum aldri verða skattgreiðslur þessa fólks ríflega 4
milljarðar króna á ári, eða um 3.400 milljónum kr. meira en nemur tapi ríkisins af því að
afnema tekjutengingu ellilífeyris. Fjárhæðin gæti með öðrum orðum verið hærri en það
sem ríkið tapar í auknum bótagreiðslum.
Þetta er athyglisverð niðurstaða. Hún leiðir í ljós,að það kostar ríkið ekki neitt að afnema tekjutengingu eða draga úr henni. Ríkið fær kostnaðinn allan til baka í auknum skatttekjum.Tölur Rannsóknarsetursins um fjölda á vinnumarkaði eru byggðar á itarlegum könnunum.Í stórum dráttum er reiknað með að 1/3 eldri borgara sé á vinnumarkaði en 2/3 hættir að vinna.
Hér ef ef til vill kominn skýringin á því hvers vegna ríkið vill aðeins gera eitthvað fyrir þá sem eru á vinnumarkaði en ekkert fyrir hina. Það er vegna þess,að þessi leið kostar ríkið ekki neitt.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 11. september 2008
Skattleysismörk fylgi launavísitölu
Fyrir síðustu alþingiskosningar setti Samfylkingin fram eftirfarandi stefnu varðandi skattleysismörk:
Við viljum hækka skattleysismörk til samræmis við launabreytingar.Það er bein atlaga að kjörum eldri borgara,þegar skattleysismörk fylgja ekki launavísitölu. Þá njóta þeir ekki þeirrar kaupmáttaraukningar,sem verður í samfélaginu.
Ef skattleysismörk hefðu fylgt launavísitölu frá 1988 væru þau í dag yfir 150 þús. kr. á mánuði en þau eru 95 þús.Ríkisstjórnin hefur samþykkt að skattleysismörkin skuli hækka um 20 þús. á mánuði á kjörtímabilinu. Sú breyting verður gerð í áföngum.Það er gott skref en hvergi nærri nóg miðað við stefnu Samfylkingarinnar um að skattleysismörkin fylgi launavísitölu.
Hækkun skattleysismarka er mjög góð kjarabót fyrir láglaunafólk og þar á meðal fyrir eldri borgara. Ef þau hefðu fylgt launavísitölu væri staða eldri borgara mikið betri í dag en hún er.
Björgvin Guðmundsson