Miðvikudagur, 19. janúar 2011
Mikilvægur sigur gegn Austurríki
Leikurinn var nokkuð jafn framan af en um miðbik fyrri hálfleiks kom góður kafli hjá Austurríska liðinu sem skilaði því fimm marka forskoti í hálfleik, en þá var staðan 16-11 og útlitið ekki bjart fyrir Ísland. Guðmundur Guðmundsson virðist hafa lesið nokkuð hressilega yfir íslensku strákunum í hálfleik því það mætti allt annað lið til leiks í þeim síðari og leikurinn var jafn þegar tæplega tuttugu mínútur voru eftir. Á lokakaflanum í leiknum sýndi íslenska liðið gríðarlega góðan leik og þá ekki síst Björgvin Páll Gústavsson, markvörður, sem varði gríðarlega vel á þeim kafla en Austurríska liðið skoraði aðeins sjö mörk í seinni hálfleik. Ísland hafði að lokum sigur 26-23 og ótrúlegur viðsnúningur staðreynd. Alexander Petersson var markahæstur í íslenska liðinu með sjö mörk og Þórir Ólafsson gerði fimm.(ruv.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.