Deilan á Landspítala leyst?

Forsvarsmenn Landspítala hafa frestað gildistöku nýs vaktakerfis, sem átti að taka um mánaðamótin, fram til 1. október. Leggur spítalinn til að hjúkrunarfræðingar og geislafræðingar, sem höfðu sagt upp um mánaðamótin vegna kerfisins, fresti uppsögnum fram á haust og tíminn verði nýttur til viðræðna og samninga.

Þetta kom fram á blaðamannafundi, sem hófst nú klukkan 16 en þar las Anna Stefánsdóttir, annar tveggja starfandi forstjóra spítalans, upp fréttatilkynningu þessa efnis. 

Fram kom í fréttum Útvarpsins, að hjúkrunarfræðingar muni væntanlega greiða atkvæði um þessa tillögu á morgun en fundur hefur verið boðaður í félagi þeirra um málið.

Þetta eru ánægjulegar fréttir. Ljóst er,að stjórnendur spítalans hafa  séð að sér og ákveðið að fresta framkvæmd nýs vaktakerfis. Það er virðingarvert. Væntanlega verður sumarið notað til samningaviðræðna milli aðila og  vonandi næst samkomulag.

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


mbl.is Landspítali frestar nýju vaktakerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband