Laugardagur, 26. júlí 2008
Er fasteignamarkaðurinn að vakna?
Hann gerir ráð fyrir að afnám stimpilgjalda og hækkun hámarkslána sjóðsins skýri aukninguna. Nákvæmar tölur um aukninguna segir hann ekki hægt að gefa upp fyrr en eftir mánaðamótin næstu. En það er sýnilegt að það hefur lifnað yfir markaðnum.(mbl.is)
Vonandi er það rétt,að það sé að lifna yfir fasteignamarkðnum. En þó er ljóst,að framvindan fer einnig eftir efnahagsástæðum. Ef niðursveiflan heldur áfram þá er hætt við að fasteignamarkaðurinn liggi einnig niðri.Ef fólk missir vinnuna eða tekjur dragast mikið saman er erfitt að standa í fasteignakaupum.Ástandið á byggingamarkaðnum er mjög erfitt um þessar mundir og útlitið slæmt. Hætt er við miklum samdrætti í þeirri grein og sá samdráttur er byrjaður með uppsögnum.
Björgvin Guðmundsson
Fasteignamarkaðurinn vaknar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:43 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.