Nú er timabært að ríkið taki kvótann

Í þeim þrengingum,sem nú er við að etja  er tímabært að ríkið taki kvótann í sínar hendur. Ríkið á að innkalla allar veiðiheimildir og leigja þær út    eða

 

bjóða upp. Ríkið þarf á öllum sínum tekjum að halda nú og þess vegna er ástæðulaust að láta einkaaðila valsa með eign þjóðarinnar,veiðiheimildirnar og í mörgum tilfellum leigja handhafar kvótanna þá út.Það er nær að ríkið leigi út sína eign. Ekki mun veita af tekjunum til  þess að rétta efnahag þjóðarinnar við. Auk þess á að auka þorskkvótann eins og Guðjón Arnar hefur lagt til. Það er nógur fiskur í sjónum og það mundi hjálpa efnahag þjóðarinnar mikið að auka strax þorskkvótann.

 

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin Guðmundsson

Sæll!

Ef við viljum fara milda leið þá má fara fyrningarleiðina.

Kv .BG

Björgvin Guðmundsson, 11.10.2008 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband