Miðvikudagur, 15. október 2008
Útflytjendur fá ekki greiddan gjaldeyri,sem þeir fá sendan erlendis frá
Ófremdarástand virðist nú ríkja í bönkunum í gjaldeyrismálum. Skýrt hefur verið frá því hve erfiðlega gengur að fá yfirfærslur fyrir innflutningi og eru innflytjendur af þeim sökum komnir í vanskil erlendis.Fréttblaðið skýrir frá því að forsætisráðherra hafi hvatt útflytjendur til þess að flytja erlendar tekjur sínar til landsins Og Eiríkur Guðnaon bankastjóri Seðlabankans segir að nauðsynlegt sé að auka gjaldeyristekjur með útflutningi. En nú berast fréttir af því,að útflytjendur fái ekki greiðslur sínar afgreiddar í bönkunum fyrir útflutning enda þótt þær séu komnar til landsins. Þær séu fastar í bönkunum . Það þýðir lítið að hvetja til útflutnings,ef ástandið er þannig. Um hvort tveggja er að ræða: Greiðslur eru fastar erlendis en þær eru líka fastar í bönkunum hér heima. Það ætti að vera auðvelt að kippa síðara atriðinu í liðinn.Ég skora á viðskiptaráðherra að gera það.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:08 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.