Hörð mótmæli starfsmanna RÚV

Fundur starfsmanna Ríkisútvarpsins sem haldinn var klukkan eitt samþykkti ályktun þar sem segir að aðgerðir og aðgerðaleysi stjórnvalda feli í sér aðför að almannaþjónustuhlutverki Ríkisútvarpsins. Harmað er að æðstu stjórnendur fyrirtækisins hafi ekki séð aðra leið en að segja upp fólki og skerða laun. Rétt væri að þeir litu í eigin barm og  deildu kjörum með þeim sem undir þeim vinna. Ekki sé hægt að réttlæta ofurlaun hjá almannaútvarpi í ríkiseigu á meðan fólk sé rekið í sparnaðarskyni.  Þess er krafist að uppsagnir verði dregnar tafarlaust til baka. Kjaraskerðingu og skerðingu á samningsbundnum réttindum, þar með talinni flatri  launalækkun er hafnað.

Páll Magnússon útvarpsstjóri bað stjórn Félags fréttamanna um fund í morgun til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri vegna harðrar ályktunar félagsins þar sem  fréttalestur hans er meðal annars afþakkaður vegna þess sem er sagt vera skilningsleysi á hlutverki Ríkisútvarpsins.  Aðalbjörn Sigurðsson formaður félagsins segir að engar breytingar séu á afstöðu félagsins eftir fundinn með útvarpsstjóra í dag. Félagið hefur óskað eftir fund með Menntamálanefnd Alþingis um málið.(mbl.is)

Eðlilegt er,að starfsmenn RUV séu reiðir og mótmæli. Það hefur verið bruðlað mikið í rekstri RUV og þar á meðal með óhófslaunum útvarpsstjóra,sem eru tvöföld laun forsætisráðherra. Einnig er bruðlað í bílakostnaði útvarpsstjóra. Óhófseyðsla hefur verið víðar hjá RUV.

 

Björgvin GuðmundssonHörð

 

Fara til baka 


mbl.is Óréttlætanleg ofurlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband