Færsluflokkur: Bloggar
Mánudagur, 27. nóvember 2017
VG að skera Sjálfstæðisflokkinn niður úr snörunni!
!
Samkomulag mun vera komið milli VG,ihalds og Framsóknar um að þessir flokkar gangi í eina sæng saman í ríkisstjórn.Fréttamaður RUV fór í gær í ráðherrabústaðinn að leita frétta af viðræðunum.Hann varð þess var að formennirnir skáluðu í lok fundar.Það bendir til þess að samkomulag sé komið milli flokkanna.Fréttamaðurinn hitti Bjarna Benediktssson og fékk þær upplýsingar hjá honum,að stjórnarsáttmálinn yrði væntanlega tilbúinn í dag.Flokkarnir ákváðu fyrst að skipta með sér ráðherrastólum á þennan hátt: Íhald 5 stólar,VG 3 stólar og Framsókn 3 stólar. VG forseti alþingis.Málefnn voru látin bíða.-Það var talsvert áfall fyrir Sjálfstæðisflokkinn,þegar Björt framtíð sleit stjórn Bjarna Benediktssonar vegna trúnaðarbrests.Björt framtíð sagði,að íhaldið hefði haldið því leyndu fyrir samstarfsflokkunum,að alræmdum barnaníðingi hefði verið veitt uppreist æru með meðmælum föður Bjarna Benediktssonar.Þetta var kallað leyndarhyggja og gagnrýnt harðlega á alþingi og í stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd.Svandís Svavarsdóttir alþingismaður gagnrýndi Sjálfstæðisflokkinn harðlega fyrir athæfið. Vegna þess að Björt framtíð sleit stjórninni í mótmælaskyni við athæfi Sjálfstæðisflokksins í uppreist æru málinu varð að rjúfa þing og kjósa. Þegar það gerðist datt engum í hug, að Vinstri græn mundu skera íhaldið niður úr snörunni og leiða það til valda á ný í stjórnarráðinu. En það er nú að gerast.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 24. nóvember 2017
Lyfta þarf lífeyri langt upp fyrir fátæktarmörk
Nýtt alþingi kemur saman. Ákveðið er, að það komi saman í síðasta lagi um mánaðamótin nóvember/desember Afgreiða þarf fjárlög fyrir áramót.
Væntanlega tekur nýtt alþingi betur á kjaramálum aldraðra og öryrkja en gamla þingið gerði.Því miður hafði gamla þingið lítinn áhuga á að bæta kjör aldraðra og öryrkja. Það,sem var gert á því sviði,var of lítið og of seint.
Lífeyrir hækki í 320 þús á mánuði eftir skatt
Miðað við kosningastefnuskrár stjórnmálaflokkanna er ekki að búast við miklum afrekum alþingis á þessu sviði.Það,sem stjórnamálaflokkarnir boðuðu fyrst og fremst, var að láta lífeyri aldraðra og öryrkja fylgja lágmarkslaunum verkafólks.Það er of lítið.Það dugar ekki. Það þýðir, að lífeyrir eigi áfram að vera við fátæktarmörk.Tveir flokkar boðuðu róttækari stefnu,Flokkur fólksins og Piratar en þeir komast ekki í stjórn.Lágmarkslaun eru nú 230 þúsund kr eftir skatt,hjá einstaklingum.Þau eiga að hækka um 12 þúsund kr á mánuði 2018.Það er hlægileg hækkun og skiptir engu máli. Eftir sem áður verða lægst launuðu verkamenn með laun við fátæktarmörk.Það er til skammar,að verkalýðshreyfingin skuli líða svo lág laun.Hún mun afsaka sig með því, að mjög fáir séu á lágmarkslaunum.Aðeins um 5% munu vera á þessum lægsta taxta og sem betur fer komast flestir á hærri taxta. En því ámælisverðara er það að miða lífeyri aldraðra og öryrkja við pappírstaxta.Alþingi verður að grípa hér í taumana og hætta að miða við lágmarkslaun ,sem fáir eru á og ákveða lífeyri þess í stað þannig, að unnt sé að lifa sómasamlegu lífi af honum.Ég hef lagt til,að lífeyrir verði ákveðinn 320 þúsund kr á mánuði eftir skatt.Það er myndarleg hækkun eða um 90 þúsund kr á mánuði eftir skatt.Ef það þykir of mikil hækkun í einum áfanga má veita þessa hækkun í tvennu lagi,þannig að í fyrstu kæmi 45 þús kr hækkun. Það er aðeins brot af þeirri hækkun sem þingmenn sjálfir fengu en hún nam nokkur hundruð þúsund kr., og laun þeirra fóru í 1,1 milljón,miðað við 197-230 þúsund á mánuði hjá öldruðum og öryrkjum.Þingmenn ættu að fara að hugsasjálfsætt og lyfta lífeyri upp fyrir fátæktarmörk og ákveða þetta sjálfir í stað þess að bíða eftir ráðherrunum.
Frítekjumark vegna atvinnutekna hækkar
Allir stjórnmálaflokkar kváðust vilja hækka frítekjumark vegna atvinnutekna.Flokkarnir vildu ýmist hækka það í 100 þúsund kr eða 109 þúsund á mánuði eða afnema frítekjumarkið alveg,þannig að það væri frjálst fyrir eldri borgara að vinna á vinnumarkaðnum án þess að sæta skerðingu hjá TR,Hins vegar var lítið talað um af afnema skerðingar vegna annarra tekna.Mikilvægast er að afnema skerðingar vegna greiðslna úr lífeyrissjóði enda eiga sjóðfélagar lífeyrinn í lífeyrissjóðunum og því er það fáheyrt að stjórnvöld skuli skerða lífeyri þeirra frá almannatryggingum vegna lífeyrissjóðanna.Það er sjálfsagt og eðlilegt að eldri borgarar geti farið út á vinnumarkaðinn að vinna,ef þeir kjósa svo en þeir sem misst hafa heilsuna eða eru lélegir til heilsunnar geta ekki nýtt sér þaðAðrir eldri borgarar vilja eiga náðugt ævikvöld og vilja því ekki vinna á ellilífeyrisaldri. Þeir eru líka búnir að skila sínu vinnuframlagi til þjóðarbúsins.
Veita þarf öldruðum húsnæðisstuðning
Staða aldraðra er mjög misjöfn og fer m.a mjög eftir húsnæðiskostnaði. Þeir,sem eiga skuldlítið húsnæði eru mun betur settir en þeir sem þurfa að leigja sér húsnæði.Húsaleiga hefur hækkað gífurlega mikið síðustu árin og er orðið mjög erfitt fyrir aldraða að leigja sér húsnæði þrátt fyrir húsaleigubætur. Er nauðsynlegt að hækka húsaleigubætur verulega til þess að aldraðir og láglaunafólk geti leigt sér húsnæði.Einnig þyrfti að hækka vaxtabætur til þess að koma til mós við aldraða og láglaunafólk,sem á erfitt með að greiða af íbúðum sínum.Hækka þarf skattleysismörkin en þau hafa ekki hækkað í samræmi við hækkun neysluvísitölu.Hækkun skattleysismarka væri góð kjarabót bæði fyrir aldraða og láglaunafólk.
Björgvin Guðmundsson,viðskiptafræðingur
Fréttablaðið 24.nóv.2017
www.gudmundsson.net
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 23. nóvember 2017
Bjarni og Katrín sömdu um stjórnarsamstarf fyrir kosningar!
Rætt var um stjórnarmyndun á Hringbraut sjónvarpstöð í gær. Sigmundur Ernir ræddi við Gunnar Smára og Reyni Traustason,tvo fyrrverandi ritstjóra.Þeim kom saman um það, að þau Katrín Jakobsfóttir og Bjarni Benediktsson þyrftu mjög á því að halda að komast í ríkisstjórn.Það væri sameiginlegt áhugamál þeirra að komast í stjórn.Gunnar Smári taldi,að þau hefðu komið sér saman um það fyrir kosningar að mynda stjórn eftir kosningar.Gunnr Smári sagði,að það væri enginn sósialismi lengur í flokki vinstri grænna.VG og Sjálfstæðisflokkurinn væru hins vegar sammála um landbúnaðarmál,sjávarútvegsmál og um Evrópusambandið; það væru helst skattamálin, sem einhver ágreiningur væri um.Sigmundur Ernir spurði hvort svona stjórn íhalds,framsóknar og VG gæti ekki setið lemgi. Það taldi Reynir Traustason ólíklegt.Ólgan í VG væri það mikil ,að stjórn með Sjálfstæðisflokknum mundi endast stutt.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 21. nóvember 2017
Sprittstjórnin að komast á koppinn!
Helga Vala Helgadóttir alþingismaður Samfylkingarinnar sagði í Silfrinu siðasta sunnudag,að Sjálfstæðisflokkurinn hefði mikinn áhuga á því að komast í stjórn með hinum "hreina" flokki Vinstri grænum.Sjálfstæðisflokkurinn vildi láta VG spritta sig af öllu "bjakkinu"!.Það er því eðlilegt að nýja stjórnin verði kölluð "Spritttjórnin".Skiljanlegt er að íhaldið vilji láta VG spritta sig en erfiðara er að skilja hvers vegna VG vill fara í stjórn með íhaldinu.Sprittstjórnin er nú alveg að komast á koppinn.Sprittstjórnin er stofnuð um sjálfsagða hluti eins og eflingu innviða,sem drabbast hafa niður.Það er alveg sama hvaða ríkisstjórn hefði verið mynduð hún hefði alltaf orðið að efla innviðina.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 18. nóvember 2017
Rósa Björk treystir ekki Sjálfstæðisflokknum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 17. nóvember 2017
Fylgi VG hrapar úr 16,9% í 13% samkvæmt skoðanakönnun.Eykst jafnmikið hjá Samfylkingu
Fylgi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hefur dalað frá kosningum, úr 16,9% í 13%, samkvæmt nýrri könnun MMR. Einungis 60% þeirra sem sögðust hafa kosið flokkinn fyrir þremur vikum segjast mundu kjósa hann aftur nú. Í könnuninni var spurt hvaða flokk fólk vildi síst sjá í ríkisstjórn og nefndu 58% stuðningsmanna Vinstri grænna Sjálfstæðisflokkinn sem versta kostinn.
. Samfylkingin mælist nú næststærsti flokkur landsins með 16%. Flokkurinn fékk 12,1% í kosningunum fyrir þremur vikum.
Fólk var einnig spurt hversu líklegt það væri til að kjósa aftur sama flokk og í nýasfstöðnum kosningum. Vinstri græn koma þar verst út 60% segjast mundu kjósa þau aftur, en 15% segjast mundu kjósa Samfylkinguna og 6% Pírata.
Þessi könnun MMR kemur ekki á óvart.Þetta er aðeins byrjunin.Fylgið á eftir að hrynja af VG,ef flokkurinn hættir ekki við að fara í samstarf við íhaldið og hjálpa því að halda völdum.Enn er tækifæri fyrir VG að hætta við.VG ber engin skylda til þess að halda íhaldinu við völd. VG ber skylda til þess að koma íhaldinu frá völdum.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 17. nóvember 2017
Stjórnmálaskýrendur á RUV í morgun: Stjórnarsamvinna VG og Sjálfstæðisflokks löngu ákveðin!
Rætt var um stjórnarmyndunina á Rás 2 á RUV í morgun.Tveir stjórnmálaskýrendur voru mættir þar: Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,fyrrverandi borgarfulltrúi og Felix Bergsson fjölmiðlamaður.Þeim kom saman um,að stjórn VG með Sjálfstæðisflokknum væri löngu ákveðin og þess vegna gengi þetta tiltölulega vel nú.Felix Bergsson sagði,að viðræður VG við Samfylkingu,Pirata og Framsókn hefðu verið til málamynda,ætlaðar til þess að friða óánægða flokksmenn VG,svo unnt væri að segja við þá: Það er búið að reyna til vinstri.Það gekk ekki.
Þetta er stóralvarlegt mál. Það er stöðugt talað um að bæta þurfi stjórnmálamenninguna,taka upp ný vinnubrögð.Undir það fellur að hafa heiðarleika í vinnubrögðum. Það er ekki heiðarlegt að setja á svið málamyndaviðræður.Það er ekki verið að bæta stjórnmálamenninguna; það er verið að draga hana niður á lægsta plan.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. nóvember 2017
VG ekki lengur vinstri flokkur!
Vinstri grænir hafa aldrei verið eins róttækur flokkur og Alþýðubandalagið og Sósialistaflokkurinn voru.Flokkurinn var stofnaður um önnur markmið svo sem umhverfisvernd en ekki verkalýðsstefnu eins og Alþýðubandalagið og Sósialistaflokkurinn. Í áranna rás hefur VG síðan færst meira til hægri og orðið nokkurs konar miðjuflokkur.Ef stjórnarsamvinna VG við íhaldið og Framsókn,tvo íhaldsflokka,verður að veruleika mun VG festa sig í sessi sem miðjuflokkur.
VG hefur ekki sýnt neinn sérstakan áhuga á því að bæta kjör aldraðra og öryrkja og ekki barist fyrir bættum kjörum láglaunafólks.Flokkurinn hefur sömu stefnu í landbúnaðarmálum og íhald og framsókn,stefnu kyrrstöðu og verndarstefnu fyrir einökunarstofnanir landbúnaðarins. Og VG sýnir engan sérstakan áhuga á því að auka gjaldtöku af sjávarauðindinni, sem er sameign þjóðarinnar.Svo virtist sem flokkurinn gæti samþykkkt stefnu Samfylkingar og Viðreisnar á því svið en áhugi VG á því máli er lítill.
Ekkert virðist stöðva VG í því að hlaupa i fangið á íhaldinu í ríkisstjórn,þrátt fyrir spillingarmál sem fráfarandi stjórn íhaldsins er viðriðin og næsta stjórn á undan Allt bendir til þess,að það hafi þegar verið ákveðið hjá VG fyrir kosningar að leita eftir stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.Vinstri menn,róttækir jafnaðarmenn, eiga ekkert athvarf lengur í flokki vinstri grænna.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 13. nóvember 2017
VG vildi heldur semja við Sjálfstæðisflokkinn en félagshyggju-og umbótaflokka!
Vinstri grænir samþykktu á þingflokksfundi eftir hádegið að ganga til formlegra viðræðna við Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn um myndun ríkisstjórnar.Var það samþykkt með 9 atkvæðum gegn 2 í þingflokknum.Áður lá það fyrir,að að Samfylkingin hafði fengið vilyrði frá bæði formanni Viðreisnar og formanni Flokks fólksins fyrir því að þessir aðilar vildu taka þátt í viðræðum þessara flokka við Samfylkingu,VG og Pirata um myndun ríkisstjórnar en þessir flokkar hafa 32 þingmenn á alþingi.Samkvæmt þessu virðist VG fremur hafa vilja mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum og Framsókn en framangreindum flokkum til vinstri og á miðju. Áður hafði VG sagt,að flokkurinn vildi fremur mynda félagshyggjustjórn.En VG fylgdi því ekki betur eftir en svo,að á meðan flokkurinn hafði stjórnarmyndunarumboð talaði hann ekkert við Flokk fólksins eða Viðreisn en þeir tveir flokkar hafa jafnmarga þingmenn og Framsókn og gerðu því mögulegt að mynda ríkisstjórn án Framsóknar.Svo virðist,sem VG hafi ekki haft raunhæfan áhuga á myndun stjórnar á miðju og til vinstri.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 13. nóvember 2017
Viðræður VG við félagshyggjuflokkana málamyndaviðræður?
Margt bendir til þess að viðræður VG við hina félagshyggjuflokkana um ríkisstjórn þessara flokka hafi verið málamyndaviðræður.Engin meining hafi verið á bak við þessar viðræður.Það hafi þegar áður verið búið að ákveða að semja við Sjálfstæðisflokkinn um stjórnarsamvinnu.Þess varð vart þegar í kosningabaráttunni að VG andaði tæplega á Sjálfstæðisflokkinn.VG gagnrýnd Sjálfstæðisflokkinn ekkert en samt hafði Sjálfstæðisflokkurinn hrökklast frá völdum vegna spillingarmála og allir innviðir þjóðfélagsins í lamasessi vegna stjórnar Sjálfstæðisflokksins.Sjálfstæðisflokkurinn réðist hins vegar með hörku á VG og einkum á formann flokksins en afstaða VG breyttist ekkert við það. VG lýsti því alltaf yfir,að VG útilokaði ekki samstarf við neinn flokk. Kolbeinn Proppe sagði við RUV í morgun,að eftir slíka yfirýsingu hafi VG ekki getað neitað að semja við Sjálfstæðisflokkinn. Það hefðu verið svik?Þá vaknar spurningin: Hvers vegna var VG að stofna til viðræðna með öðrum fyrrum stjórnarandstöðuflokkum úr því að stefnt var á samstarf við Sjálfstæðisflokkinn allan tímann? Voru þessar viðræður þá aðeins til málamynda? Alla vega vakti það athygi,að VG boðaði ekki Viðreisn og Flokk fólksins til þessara viðræðna enda þótt Framsókn væri frá upphafi hikandi og vildi greinilega semja við íhaldið.Katrín Jakobsdóttir notaði þá afsökun að Framsókn hefði ekki viljað fá Viðreisn til viðræðna. En Katrín var með umboð fra forseta og þurfti ekki að fara eftir Framsókn. Hún gat boðað Viðreisn og Flokks fólksins og leyft Framsókn að róa. En það vantaði áhugann. Íhaldið beið handan við hornið.Það er athyglisvert,að það er svo komið í íslenskum stjórnmálum,að VG vill fremur vinna með íhaldi og framsókn,tveimur íhaldsflokkum en með félagshyggjuflokkum.Og gamlir forustumenn sósialista eins og Svavar Gestsson telja það skyldu Katrínar sð semja við íhaldið!
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)