Björgólfur nær yfirráðum yfir Mogganum

Björgólfur Guðmundsson,auðjöfur,hefur keypt hlut Ólafs Jóhanns í Morgunblaðinu ( Árvakri).Þar með hefur hann eignast meira en þriðjung í Mogganum. Björgólfur hefur lengi verið ákveðinn Sjálfstæðismaður. Hann var í stjórn Varðarfélagsins hér áður og studdi Sjálfstæðisflokkinn ávallt. Þegar  Hafskip var komið á kné fölnaði eitthvað ástin á Sjálfstæðisflokknum um skeið. En hann gekk á fund Davíðs  Oddsonar og fékk leyfi  hans til þess að kaupa Landsbankann. Ekki er eð vita hvernig farið hefði fyrir Björgólfi ef hann hefði haft sama háttinn á og Jón Ásgeir og Jón Ólafsson að kaupa banka í  óþökk Davíðs ( FBA).Þeir Jón Ásgeir og Jón Ólafsson fengu á sig 5-6 ára málaferli!

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Niðurlag pistilsins er varla þér sæmandi Björgvin....eða hvað?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 9.7.2008 kl. 18:52

2 Smámynd: Björgvin Guðmundsson

Margir telja,að DO hafi tekið því mjög illa,að  Jón Ásgeir og Jón Ólafsson skyldu kaupa stóran hlut í FBA. Ríkisstjórnin á þeim  tíma vildi,að um dreifða eignaraðild yrði að ræða  en öllum að óvörum komu þeir Jónar fram og keyptu stóran hlut í FBA.Ég er ekki viss um  að  Samson hefði náð kaupum á ráðandi hlut í Landsbankanum,ef  eigendur  þess félags hefðu ekki fengið leyfi stjórnvalda til þess að bjóða í bankann.

Kv. BG

Björgvin Guðmundsson, 9.7.2008 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband