Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Þriðjudagur, 1. janúar 2019
GLEÐILEGT NÝTT ÁR!
Ég óska vinum mínum og ættingjum gleðilegs nýs árs.Þakka gömlu árin og ánægjulega samveru og samstarf.
Björgvin Guðmundsson
Mánudagur, 31. desember 2018
Ekkert að marka tal um samstarf þvert á flokka og um aukin völd þingsins!
Mánudagur, 31. desember 2018
Er málfrelsi á Íslandi?
Í stjórnarsáttmálanum segir,að efla eigi Alþingi og auka samstarf milli stjórnar og stjórnarandstöðu.Ekkert hefur verið gert í þessu efni nema síður sé.Reynsla stjórnarandstöðunnar er sú,að frekar hafi verið farið í öfuga átt í þessu efni.Í Kryddsíld í dag skýrði Logi Einarsson formaður Samfylkingar frá því,að tillaga Samfylkingar um að auka fjárveitingar til heilbrigðisstofnana úti á landi hefði verið felld.En nokkru síðar og eftir að þingið hafði lokið störfum tilkynnti heilbrigðisráðherra að hann hefði ákveðið að láta heilbrigðisstofnanir úti á landi fá rúmlega 500 millj kr viðbótarfjárveitingu; ráðherra fór framhjá þinginu með tilmálið!Alþingi fer með fjárveitingavaldið. Ekki var það til þess að efla Alþingi eða auka veg þess.Og ekki var það til þess að auka samstarf við stjórnarandstöðuna að hundsa bæði þing og stjórnarandstöðuflokk í málinu- Talsmaður þess að auka veg þingsins,KJ,snéri út úr málinu í Kryddsíld og sagði,að Samfylkingin ætti að gleðjast yfir aukinni fjárveitingu til heilbrigðisstofnana úti á landi!-Áhuginn á að bæta samstarf stjórnar og stjórnarandstöðu er ekki meiri en svo,að fjármálaráðherra hældi sér af því að hafa fellt allar tillögur stjórnarandstöðunnar við fjárlögin á alþingi.
Í Kryddsíld í dag sagði Katrín Jakobsdóttir að á Íslandi mættu menn tala ( það væri málfrelsi) En er það svo.Ég hef áður sagt frá því,að ritfrelsi var heft þegar undirskriftasöfnun til hagsbóta fyrir aldraða var undirbúin. Og Facebook stöðvar hvað eftir annað gagnrýni á ríkisstjórnina,sem skrifuð er á Facebook.Það er því alls ekki fullt málfrelsi á Íslandi.
Björgvin Guðmundsson
Mánudagur, 31. desember 2018
Hafa skipt um hlutverk: Styrmir óánægður með misskiptingu í þjóðfélaginu en Ka trín ekki!!
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins voru gestir Kristjáns Kristjánsssonar á Sprengisandi á Bylgjunni í gærmorgun.Það,sem mér fannst athyglisvert við málflutning gestanna var það,að Styrmir Gunnarsson sagði,að það væri mikil undiralda í þjóðfélaginu í dag og sterk tilfinning fyrir því,að misskipting í þjóðfélaginu væri að stóraukast en Katrín gaf til kynn,að allt væri í góðu lagi í þjóðfélaginu.Þannig höfðu orðið greinileg hlutverkaskipti.Gamla kempan,sem stjórnaði Mbl og var einn af framámönnum Sjálfstæðisflokksins predikaði að draga þyrfti úr misskiptingu í þjóðfélaginu og sagði ,að hún mætti ekki vera of mikil en Katrín boðaði óbreytt ástand,taldi allt í góðu lagi.Þetta er dæmigert fyrir ástandið í stjórnmálunum í dag.Vinstri flokkur sprottinn upp úr tveimur verkalýðsflokkum er orðinn boðberi íhaldssjónarmiða og berst gegn launahækkun láglaunafólks og gegn hækkun lífeyris lægst launuðu aldraðra og öryrkja en gömul íhaldskempa af Morgunblaðinu varar við misskiptingu í þjóðfélaginu og heldur fram róttækum sjónarmiðum.
Styrmir sagi,að VG hefði ekki náið samstarf við verkalýðshreyfinguna í dag eins og verkalýðsflokkarnir hefðu átt hér áður.Styrmir sagðist hafa kynnst nokkrum verkalýðsleiðtogum vel hér áður,eins og Birni Jónssyni og Hannibal Valdimarssyni.Hann hefði komist að því að þessir menn hefðu verið einlægir verkalýðssinnar,sem hefðu verið að vinna gegn fátækt.Og hvað er athugavert við það,spurði Styrmir.Við erum allir komnir af fátæku fólki.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 30. desember 2018
Stjórnmálin brugðust 2018; Alþingi brást!
Laugardagur, 29. desember 2018
Bréf til Ómars Sigurðssonar!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 29. desember 2018
Er 235 þús kr eftir skatt á mán of mikið fyrir verkafólk?
Hvernig stendur á því,að "Róttæki sósialistaflokkurinn" sem leiðir ríkisstjórnina skuli leggjast gegn því,að lágmarkslaun verkafólks skuli leiðrétt,þegar allir þingmenn flokksins hafa fengið himinháar launahækkanir,70% hækkun frá ársbyrjun 2015; hækkun upp á 455 þúsund á mánuði og launin komin í 1,1 milljón fyrir skatt.Auk þess hafa þingmenn alls konar aukagreiðslur,akstursstyrki,ferðastyrki,skrifstofustyrki,háa dagpeninga í utanferðum o.s.frv. Verkafólk hefur engar aukagreiðslur. Lágmarkslaun verkamanna eru nú 235 þús kr eftir skatt.Það eru launin sem formaður "róttæka sósialistaflokksins" veit ekki hvort er svigrúm til þess að hækka!Einhvern tímann hefði flokkur hennar ekki verið í vafa um að það þyrfti að hækka þessi lúsarlaun.Sósialistaflokkurinn og Alþýðubandalagið,sem flokkur KJ er sprottinn úr hefðu ekki verið í vandræðum með að ákveða hvort hækka þyrfti lúsarlaunin.En það eru breyttir tímar. Nú er mikilvægara að halda ráðherrastólum en að bæta kjör lægst launuðu verkamanna,og lægst launuðu aldraðra og öryrkja.Allir þessir aðilar eru "gleymdir".
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 28. desember 2018
Aldraðir fá 6 þús kr 2019; dugar ekki fyrir verðbólgunni!
Tryggingastofnun hefur birt upphæðir lífeyris árið 2019.Lífeyrir aldraðra og öryrkja á að hækka um 3,6%.Sú hækkun heldur ekki í við verðbólguna,þar eð verðbólgan verður 4% næsta ár,a.m.k.
Lífeyrir aldraðra eftir skatt er í dag 243 þús kr. á mánuði hjá einhleypum.Sú upphæð hækkar í 249 þúsund á mánuði eftir skatt.M.ö.o: Eftir að í ljós er komið,að stjórn KJ hefur ekki hækkað lífeyri um eina einustu krónu allt árið, sem er senn á enda, tilkynnir Tryggingastofnun, að lífeyrir aldraðra eftir skatt eigi að hækka um 6 þúsund kr á mánuði (3,6%).Þessi hækkun nær ekki einu sinni aukningu verðbólgunnar en hún verður 4%.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 27. desember 2018
SANNGJÖRN LAUNAKRAFA
Krafa verkalýðsins: Laun hækki upp í
neysluviðmið
velferðarráðuneytis.
Lágmark.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 27. desember 2018